LEIKSKÓLAR Í Reykjanesbæ eru nú reknir 9 leikskólar og er sá 10. í bígerð. Hver skóli hefur eigin uppeldisstefnu og stefnt er að því að öll börn 2ja ára og eldri eigi vísa leikskólavist. Skoða leikskóla í Reykjanesbæ Frístundaskólinn Vinnuskólinn Fjölbrautaskóli Suðurnesja Tónlistarskóli Reykjanesbæjar Íþróttaakademían í Reykjanesbæ Keilir, miðstöð fræða og vísinda Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum ÍÞRÓTTAAKADEMÍAN Íþróttaakademían býður aukinn valkost til menntunar í Reykjanesbæ. Tenging Akademíunnar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja gefur fyrirheit um vöxt og framgang Akademíunnar á næstu árum. • Samstarf við Háskólann í Reykjavík verður aukið á sviði háskólamenntunar, m.a. á sviði heilsuþjónustu, iðngreina og íþróttafræða. Meistaranám í íþróttafræðum verði hafið. NÝR FRAMHALDSSKÓLI Huga þarf að framtíð framhaldsnáms á Suðurnesjum. • Unnið verður að undirbúningi nýs framhaldsskóla í Reykjanesbæ sem áhugavert væri að tengja vísindum, íþróttum og listum. Tekin verður ákvörðun um staðsetningu í samvinnu við menntamálaráðuneytið. MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Aðstaða til fjarnáms batnaði til muna með tilkomu húsnæðis Íþróttaakademíunnar. • Möguleikar til frekara fjarnáms á sviði háskólamenntunar verða áfram skoðaðir. „HLJÓMAHÖLLIN" : TÓNLISTARSKÓLI OG RÁÐSTEFNUMIÐSTÖÐ Þróun hugbúnaðar, hugmynda og hugverka er mikilvæg auðlind til verðmæta- og atvinnusköpunar á Íslandi. Menntun, menning og afþreying eru birtingarform sem skapa atvinnu og fullnægju í hverju samfélagi. Bæjarfélag sem hýsir vöggu íslenskrar popp- og rokkmenningar, þar sem tónlistarkennsla er í hávegum höfð, þar sem er hlið ferðamanna inn í landið, kallar á virkjun sköpunargleðinnar. Tónlist hefur í marga áratugi verið flaggskip menningarlífs Reykjanesbæjar. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar hefur verið í forystu þegar kemur að kennsluháttum og þjónustu við grunn- og framhaldsskólanemendur auk annarra íbúa bæjarfélagsins sem vilja stunda tónlistarnám. • Tónlistarskóli Reykjanesbæjar mun flytja í nýtt og glæsilegt húsnæði. • Með okkar öfluga starfsfólki og stuðningi færustu Íslendinga á sínu sviði viljum við skapa hér aðstöðu til háskólamenntunar á sviði tónlistar. • Með hugmynd um Hljómahöll sem miðju tónlistarkennslu, tónlistarkynninga og varðveislu popp- og rokktónlistarsögu Íslendinga er lagður grunnur að auknum atvinnutækifærum Íslendinga í sköpunar- og afþreyingariðnaði. • Áhersla verður lögð á að gera aðstöðu Hljómahallarinnar að aðdráttarafli fyrir innlenda og erlenda áhugamenn um tónlist. • Með tengingu Tónlistarskóla og sýningaaðstöðu við félagsheimilið Stapa, skapast frábær aðstaða fyrir hentuga og glæsilega tónlistar- og ráðstefnumiðstöð. • Í Hljómahöllinni mun Poppminjasafn Íslands hafa höfuðstöðvar en kjarninn byggir á tónlistarmenntun sem stjórnað er frá nýjum höfuðstöðvum Tónlistarskólans sem þar verða. • Tenging við Stapann og Tónlistarskólann, skapar hagkvæma möguleika á að opna húsið fyrir meðalstórar ráðstefnur þegar á þarf að halda, eða nýta það allt til tónleika eða sýningahalds. • Á öðrum tímum nýtist það með afmarkaðri hætti fyrir tónlistarskólann. • Hægt verður að reka félagsheimilið Stapa áfram í núverandi mynd þar sem bæjarbúar geta komið saman á góðri stund. Orðið Hljómahöllin vísar til litrófs og mikilvægis hljóma í menningu heimsins, um leið og Hljómar frá Keflavík eru Bítlar Íslandssögunnar á tónlistarsviðinu og fá verðskuldaða athygli í húsnæðinu. Með Hljómahöllinni verður sköpuð yfirstjórn sem hafi það að markmiði að: • Efla tónlistarmenntun og stuðla að nýtingu íslenskrar tónlistar og tengingar við aðra þróun hugbúnaðar, hugmynda og hugverka, sem verðmæta- og atvinnusköpun til framtíðar. • Að tengja saman starf Tónlistarskólans, veitingarekstur og sýningahald tengt popp- og rokksögu í Hljómahöllinni. • Að halda í heiðri sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi með kynningarstarfi og viðurkenningum til listamanna. • Að stjórna alþjóðlegum æfingabúðum fyrir hljómsveitir á Keflavíkurflugvelli - með gróðurrækt og umhirðu svæðis að endurgjaldi. NÝIR LEIKSKÓLAR Mikil íbúafjölgun kallar á byggingu nýrra leikskóla og stækkun og endurbætur á þeim eldri. • Á árinu 2007 verður tekinn í notkun leikskólinn Akursel í Innri Njarðvík. Fullbúinn er leikskólinn fyrir 140 börn. • Þá verður byggður nýr leikskóli við Vesturberg í stað núverandi húsnæðis þar. Opnaður vor 2008. • Þess verður gætt að leikskólapláss verði í samræmi við fjölgun barna á leikskólaaldri. • Engin 2 ára börn eða eldri verði á biðlista eftir leikskólaplássi að hausti.
UPPELDI TIL ÁRANGURS • Skipulega verði skimað fyrir þunglyndi og kvíða hjá unglingum og veitt viðeigandi meðferð og þjálfun. Leitað verður eftir samstarfi við HSS, Námsmatsstofnun og HÍ. • Reykjanesbær stuðlar að sterkri sjálfsmynd unglinga og heilbrigði þeirra með fræðslu og stuðningi. Þetta verður áhersluatriði okkar fram til ársins 2010 og áfram! • Leitað verður leiða til að nýta svipaðar aðferðir og SOS verkefnið til að vinna með unglingum og forráðamönnum þeirra, nýtingu heimasíðu og samskiptakerfis. • Verkefnið verði unnið í samstarfi við FFR, HSS, Námsmatsstofnun og HÍ.
SKILVIRKIR GRUNNSKÓLAR Reykjanesbær hefur á undanförnum árum lagt áherslu á vandað grunnskólastarf.Framtíðarsýn bæjarins leggur áherslu á að stuðla að heilbrigði og hamingju hvers einstaklings. Í hnotskurn snýr framtíðarsýn okkar í grunnskólanum að eftirfarandi þáttum: • Að nemendur séu ánægðir í grunnskólanum. • Að við höfum á að skipa hæfu og ánægðu starfsfólki. • Að í skólanum bjóðist næringarríkar og góðar máltíðir á hagstæðu verði. • Að skipulag skólastarfs sé vel unnið frá fyrsta skóladegi. • Að vinnuumhverfi nemenda og starfsmanna sé öruggt. • Að viðhald húsnæðis og búnaðar sé gott. • Að samgönguleiðir að og frá skóla séu öruggar og þægilegar. • Að virkt upplýsingastreymi sé milli starfsmanna, nemenda, foreldra og stjórnvalda. • Að vinnuandi sé jákvæður og skapandi. • Að virkni og jákvæðni foreldra komi fram í skólastarfinu. • Að virkni og jákvæðni samfélagsins sé gagnvart skólastarfinu. |