| 9.9.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Uppskeruhátíð sumarlesturs |
| 180 boðskort voru send út á alþjóðlegum degi læsis til barna sem tóku þátt í sumarlestri Bókasafnsins í ár. Þau bættu hlekkjum í bókaorminn sem hlykkjaðist um allt safnið í sumar. Hlekkirnir urðu samtals 1516 og ormurinn 36 metrar að lengd. Við ætlum að halda upp á árangurinn næstkomandi laugardag klukkan 13.30 með uppskeruhátíð.Sérstakur gestur á uppskeruhátíðinni í ár verður Sigrún Eldjárn rithöfundur og myndlistarmaður og ætlar hún að segja börnunum frá því hvernig bækurnar verða til, ásamt því að lesa sögubrot. Barnabækur Sigrúnar eru orðnar fjölmargar og alltaf vinsælar að lesa.Nokkrir heppnir þ&a |
| meira |
| |
| 8.9.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Kynningarfundur v/lestrar- og skriftarnámskeiðsins |
| Við viljum minna foreldra Sunnuvallabarna á kynningarfundinn sem haldinn verður í leikskólanum, fimmtudaginn 9. sept. kl. 14:30 |
| meira |
| |
| 8.9.2010 | Leikskólinn Holt |
| Tónlistartímar af stað |
| Vetrarstarfið er hafið hjá okkur á Holti. Aðlögun nýrra barna hefur gengið vel, á yngstu deildinni Laut eru byrjaðir efnilegir leikskólanemendur og hlökkum við til að takast á við nýjan vetur með skemmtilegum barnahópi. Geirþrúður tónlistarkennarinn okkar er mætt aftur eftir sumarleyfi. Tónlistartímar vetrarins byrjuðu í dag og verða á miðvikudögum eins og verið hefur, gott er að foreldrar kynni sér hvenær börnin eru í tónlistartíma og séu mætt með börnin tímanlega svo þau missi ekki af tónlistinni. Skipulag tónlistartíma hanga í fataklefum á Koti, Hlíð og Lundi en börnin af Laut eru í tónlist á sinni deild með sínum kennurum. Hér má sjá Antoníu Líf og Hönnu Siggu af Hlíð búnar að velja sér trommur í tónlist í dag. |
| meira |
| |
| 8.9.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Alþjóðlegur dagur læsis í dag |
| Yngstu drengirnir á leikskólanum Gimli komu í heimsókn á Bókasafnið í tilefni af alþjóðlegum degi læsis. Þeir notuðu ferðina og skoðuðu myndir sínar á sumarsýningu leikskólanna, en sýning Gimlis stendur nú yfir. Drengirnir voru mjög duglegir í sinni fyrstu bókasafnsferð og sýndu bókunum mikinn áhuga, eins og myndirnar bera með sér. |
| meira |
| |
| 6.9.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Landsliðsþjálfararnir kíkja í blöðin og ræða við gesti |
| Íslensku fótboltalandsliðin gista gjarnan á Flughóteli og æfa á íþróttavöllum Reykjanesbæjar fyrir landsleiki. Fólkið sker sig úr í bláum íþróttagöllum og fastagestum Bókasafnsins finnst mikil upplyfting að fá þessa góðu gesti í heimsókn. Tækifærið er gjarnan gripið til þess að ræða áhugamálin, fótboltann.Síðastliðinn föstudag tók íslenska karlalandsliðið í fótbolta á móti því norska og var þetta fyrsti leikur liðanna í undankeppni EM 2012. Því miður tapaði Ísland með eins marka mun.Á fimmtudeginum þegar hópefli íslenska liðsins stóð sem hæst, röltu landslið |
| meira |
| |
| 6.9.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Leikskólinn Gimli með síðustu sumarsýningu ársins |
| Síðasta sumarsýning þessa árs er hafin á Bókasafninu. Það er leikskólinn Gimli sem er síðastur í röðinni að þessu sinni og hófst sýningin í dag. Hún stendur til laugardagsins 18. september.Á sýningunni eru fjölbreytt myndverk eftir börn úr öllum kjörnum leikskólans undir kjörorðinu „Veröldin okkar sem laðar og lokkar". |
| meira |
| |
| 3.9.2010 | Leikskólinn Holt |
| Stígvélagarðurinn opnaður |
| Í dag föstudag opnuðum við formlega stígvélagarðinn okkar "Fetað til framtíðar". Það voru margir viðstaddir opnunina þar sem börnin sungu nokkur lög og var síðan opnað formlega með fánum og sápukúlum. Viðfangsefni sýningarinnar er fjaran í máli og myndum. Við hvetjum alla til að gefa sér tíma til að fara og skoða. |
| meira |
| |
| 2.9.2010 | Heiðarskóli |
| Setning Ljósanætur |
| Setning Ljósanætur fór fram við Myllubakkaskóla kl. 10:30 í morgun. Nemendur og starfsfólk Heiðarskóla mættu að sjálfsögðu þar með bláu blöðrurnar sínar. Myndir frá athöfninni eru komnar á heimasíðuna. |
| meira |
| |
| 1.9.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Þátttaka leikskólabarna að opnunarhátíð Ljósanætur |
| Sunnuvallabörnin taka þátt í opnunarhátíð Ljósanætur við Myllubakkaskóla kl. 10:30 á morgun (fimmtudaginn 2. speptember). |
| meira |
| |
| 1.9.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Elstu börnin fara á opnunarhátíð Ljósanætur |
| Fimmtudaginn 2. september er opnunarhátíð Ljósanætur við Myllubakkaskóla. Elstu börn leikskólans fædd 2005 taka þátt í hátiðinni. Gott er ef allir eru mættir fyrir klukkan 9:30 þennan dag. |
| meira |
| |
| 31.8.2010 | Listasafn Reykjanesbæjar |
| Góð gjöf til Listasafnsins |
| Í dag kom Einar Guðberg Gunnarsson færandi hendi til Listasafns Reykjanesbæjar með tvö málverk að gjöf til safnsins frá fyrrum eigendum fyrirtækisins Ramma. Auk Einars stýrðu fyrirtækinu þeir Sigurþór Stefánsson og Jón Ármann Arnoddsson. Myndirnar eru eftir Suðurnesjamennina og listamennina góðkunnu Óskar Jónsson og Guðmund Maríusson. Mynd Guðmundar keyptu þeir félagar beint af honum sjálfum árið 1982 en þá var hann starfsmaður í Ramma. Mynd Óskars keyptu þeir um áratug fyrr en báðar prýddu þær skrifstofur Ramma alla tíð þar til nú er þeir færðu Listasafninu myndirnar til varðveislu.
Svo skemmtilega vill til að nú um Ljósanæturhelgina verður form |
| meira |
| |
| 30.8.2010 | Leikskólinn Holt |
| Á ljósanótt |
| Fetað til framtíðar í fjörunni. Á ljósanótt 2010 verður opnaður listaverkagarður leikskólabarna sem staðsettur er í fjörgarðinum fyrir neðan tjarnirnar í Innri Njarðvík. Þar er finna ýmiskonar fjársjóð sem geymdur er í stígvélum. Stígvélin eru táknmyndir barna sem feta veginn áfram til framtíðar. Í stígvélunum eru myndir og hugrenningar barna í leikskólanum Holti um fjöruna. Þetta er afar skemmtileg og litrík sýning á listaverkum barna. Nemendur og kennarar á Holti hvetja alla bæjarbúa stóra og smáa til að gefa sér tíma til að skoða sýninguna. Listaverkagarðurinn verður formlega opnaður föstudaginn 3.september kl.10:00 með söng og gleði leikskólabarna á Holti. Allir velkomnir. |
| meira |
| |
| 30.8.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Viðburðir á Bókasafninu yfir Ljósahátíð |
| Fjórir dagskrárliðir verða innan veggja Bókasafnsins yfir Ljósahátíðina 2. til 5. september næstkomandi. Það er sumarsýning leikskólans Vallar, sem nú stendur yfir, handavinnusýning Valgerðar Jónsdóttur í glerskápum, sem einnig er komin upp, vakin verður athygli á afrakstri sumarlesturs í sumar og sýningin Sögubrot verður á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar. Þar verða sýndar innrammaðar útsaumsmyndir og munir tengdir handavinnu. Einnig verða hengdar upp myndir af skipsáhöfnum og gestir og gangandi beðnir um að aðstoða við að þekkja fólkið á myndunum og skrá í þar til gerða möppu.Fjöldi dagskrárliða verður í Kjarna yfir Ljósahátíð og ver&et |
| meira |
| |
| 27.8.2010 | Heiðarskóli |
| Skólastarfið fer vel af stað |
| Skólastarfið fer vel af stað fyrstu vikuna í Heiðarskóla. Nemendur eru kátir og hressir og starfsfólk ánægt að hitta nemendur aftur eftir gott sumarfrí. Margir kennarar nýta þessa fyrstu daga til að þjappa bekkjunum saman með hópeflisleikum og ef veður leyfir er farið út í styttri ferðir. |
| meira |
| |
| 27.8.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Nýr sérkennslusjóri í Tjarnarseli |
| Árdís Hrönn Jónsdóttir sem heldur utanum verkefnið ,,Bók í hönd og þér halda engin bönd" hefur ráðið sig sem sérkennslustjóri Tjarnarsels, en hún mun jafnframt stýra verkefninu sem lýkur formlega 2011. Árdís mun m.a. hafa umsjón með börnum, sem þurfa sérstuðning, annast frumgreiningu og veita starfsfólki og foreldrum faglega ráðgjöf og stuðning. |
| meira |
| |
| 26.8.2010 | Leikskólinn Hjallatún |
| Skipulagsdagur 27. ágúst |
| Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 27. ágúst vegna skipulagsdags starfsfsólks. Við mætum hress og kát mánudaginn 30. ágúst. |
| meira |
| |
| 26.8.2010 | Listasafn Reykjanesbæjar |
| Sýning Guðmundar R. Lúðvíkssonar LJÓS//NÓTT |
|
Föstudaginn 3. september verður opnuð sýning á verkum Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar í Listasafni Reykjanesbæjar. Um einskonar innsetningu er að ræða þar sem unnið er með ljós og myrkur, veggverk og skúlptúra. Heiti sýningarinnar vísar hvoru tveggja til sjónar og blindu sem segja má að sé megin viðfangsefni sýningarinnar. Sýningin er einnig áminning um að ekki er sjálfgefið að veröldin sýni sig öll eins og hún er, þótt öll skynfæri séu virk. Listamaðurinn ætlast enda til að verkin séu snert auk þess sem í uppröðun þeirra er falið orðið „snertið" á blindraletri. Segja má að sýning Guðmundar Rúnars sé eins konar |
| meira |
| |
| 25.8.2010 | Leikskólinn Holt |
| Leikskólakennaranemi |
| Anna Lilja leikskólakennaranemi við Háskólann á Akureyri verður hjá okkur á Holti í vettvangsnámi næstu tíu vikurnar. Anna Lilja verður á Lundi með leiðsögn Ingibjargar. Anna Lilja mun vinna að ýmsum verkefnum hér hjá okkur á þessu tímabili. við bjóðum Önnu Lilju velkomna og hlökkum til að eiga þessar tíu vikur með henni.
|
| meira |
| |
| 25.8.2010 | Leikskólinn Garðasel |
| Skipulagsdagur |
| Kæru foreldrar/forráðamenn
Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 24. september 2010 vegna skipulagsdags kennara. |
| meira |
| |
| 19.8.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Starfsmannabreytingar |
| Við upphaf haustannar urðu eftirfarandi breytingar á starfsmannahópnum: Alda Kristinsdóttir íþróttafræðingur kom til starfa á Hól, vinnutími hennar er frá 8:00-16:00. Halla Björk sem starfaði á Hól er farin yfir á Bakka. |
| meira |
| |
| 18.8.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Velkomin úr sumarleyfi |
| Nú erum við komin til starfa eftir sólríkt sumarfrí. Við viljum bjóða nemendur og foreldra þeirra velkomna aftur og vonum að þið hafið notið sumarleyfisins. Nýja foreldra og börn þeirra bjóðum við einnig velkomin og hlökkum til samstarfs á næstu árum. |
| meira |
| |
| 18.8.2010 | Leikskólinn Hjallatún |
| Foreldraráð |
| Við auglýsum eftir foreldrum í foreldraráð Hjallatúns. Ráðið saman stendur af þremur foreldrum og leikskólastjóra.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
Þeir sem hafa áhuga að starfa í foreldraráði hafið samaband við leikskólastjóra. |
| meira |
| |
| 18.8.2010 | Leikskólinn Hjallatún |
| Komin til starfa eftir sumarfrí |
| Nú erum við komin aftur til starfa eftir gott sumarfrí. Starfsfólk skólans er í óða önn að skipuleggja vetrarstarfið. Það hafa verið nokkrar mannabreytingar á Hjallatúni. Ásdís er farin í skóla og eru Elsa og Svala ný bakaðar mæður. Við óskum þeim til hamingju. Við höfum ráðið Sigríði Karólínu og Freydísi Helgu Árnadóttir grunnskólakennara til starfa. Við bjóðum þær velkomnar til starfa. |
| meira |
| |
| 12.8.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Hannyrðasýning í glerskápum |
| Sýning á hannyrðum Valgerðar Jónsdóttur stendur nú yfir í glerskápum Bókasafnsins. Valgerður er mikil hannyrðakona og starfar mikið í félagsstarfi eldri borgara á Nesvöllum, m.a. við hannyrðar. Á sýningunni er verk sem unnin eru með harðangri og klaustri en einnig bútasaumsverk. Sýning stendur út september og mun á ljósanótt sameinast sýningu Byggðasafns Reykjanebæjar innan veggja bókasafsins þar sem einblínt verður á störf kvenna undangengna áratugi. |
| meira |
| |
| 11.8.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Eldgos og umbrot á listsýningu Holtsbarna |
| Nú stendur yfir sýning á verkum leikskólabarna á Holti og er sýningin sú 8. í röðinni af listsýningu leikskólabarna í sumar. Eldgos og eldsumbrot hafa mikið verið í umræðunni í kjölfar eldgosanna í Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli og túlkuðu börnin það í listsköpun. Sýningin stendur til 20. ágúst og er opin á opnunartíma safnsins. |
| meira |
| |
| 10.8.2010 | Heiðarskóli |
| Skólasetning |
| Heiðarskóli verður settur 23. ágúst. Nemendur mæti á sal skólans eins og hér segir:
kl. 9.00 2. bekkur, 3. bekkur, 4. bekkur,
kl. 10.00 5. bekkur, 6. bekkur, 7. bekkur,
kl. 11.00 8. bekkur, 9. bekkur, 10. bekkur,
kl. 13.00 1. bekkur.
Starfsmenn mæti til vinnu mánudaginn 16. ágúst kl. 9.
Hlökkum til að sjá ykkur! |
| meira |
| |
| 10.8.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Nýjar myndir af börnum og foreldrum í aðlögun í Tjarnarseli |
| Þátttökuaðlögunin inni á Mánavöllum (á yngstu deildinni) hefur gengið mjög vel og nú er hægt að skoða skemmtilegar myndir sem voru teknar þessa þrjá daga sem börnin voru í aðlögun. |
| meira |
| |
| 9.8.2010 | Leikskólinn Holt |
| Í leikskóla er gaman |
| Það hefur verið mikið að gera hjá okkur á Holti í dag, 18 ný börn voru að hefja leikskólagöngu sína. Það er alltaf gaman að hitta ný börn og nýja foreldra. Dagurinn hefur gengið mjög vel þrátt fyrir erfiðan hvíldartíma en það er nú líka erfiðasta stund dagsins svona fyrst í stað en þetta kemur allt. Veðrið hefur verið yndislegt sem er stór þáttur í skemmtilegum leikskóladegi. Hér á síðunni undir "Laut" "myndir" má sjá myndir af nokkrum börnum sem voru að byrja leikskólagönguna ásamt foreldrum sínum. |
| meira |
| |
| 5.8.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Aðkoma foreldra að aðlögun barna sinna |
| Föstudaginn 6. ágúst mæta 12 ný börn í leikskólann með foreldrum sínum. Til að auðvelda barninu aðlögunina bjóðum við upp á þriggja daga þátttökuaðlögun sem byggir á því að foreldrar taka með beinum hætti þátt í daglegu starfi deildarinnar frá 9:00 til 15.00. Þessa þrjá daga, á hvíldartíma barnanna, fá foreldrar enn frekari fræðslu um starfs- og kennsluhætti leikskólans, eins og útnám í vettvangsferðum, lestrarnám og kubbbafræðum. |
| meira |
| |
| 4.8.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Velkomin úr sumarleyfi |
| Við bjóðum börn og foreldra velkomna aftur að loknu dásamlegu sumarleyfi og vonum að allir hafi notið þess í blíðviðrinu sem ríkti á meðan leikskólinn var lokaður. Einnig bjóðum við ný börn og foreldra þeirra velkomna og hlökkum til samstarfs við þau í framtíðinni. |
| meira |
| |
| 3.8.2010 | Leikskólinn Garðasel |
| Garðasel 36 ára |
| Leikskólinn Garðasel tók til starfa um mánaðarmótin maí / júní 1974. Leikskólinn var svo formlega tekinn í notkun eða vígður 3. ágúst sama ár. Eins og hefðin er þegar haldið er upp á afmæli þá fáum við ís í eftirrétt og skúffuköku í síðdegishressingu. |
| meira |
| |
| 3.8.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Sumarsýning Garðasels |
| Sumarsýning leikskólabarna á Garðaseli prýðir nú veggi safnsins. Börnin voru m.a. að vinna í vetur með líkamann og hafa útbúið möppur um verkefnið sem eru hér til sýnis. Sýningin stendur til 6. ágúst. |
| meira |
| |
| 3.8.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Bókaormurinn lengist og lengist |
| Grunnskólabörn í Reykjanesbæ hafa svo sannarlega verið duglega að lesa í sumar og bókaormurinn lengist og lengist. Hann er nú orðinn rúmlega 30 metra langur. |
| meira |
| |
| 2.8.2010 | Leikskólinn Holt |
| Leikskóli á morgun |
| Núna er sumarleyfi leikskólans liðið. Við mætum öll hress og kát til vinnu á morgun þriðjudaginn 3.ágúst. Við hlökkum til að sjá ykkur aftur kæru börn og foreldrar. |
| meira |
| |
| 20.7.2010 | Leikskólinn Garðasel |
| Velkomin til starfa eftir sumarfrí/breytingar á starfsfólki |
| Mánudaginn 19. júlí mættum við aftur til starfa eftir gott sumarfrí,
vonandi hafa allir haft það gott. Við bjóðum nýja nemendur og
foreldra þeirra velkomin til okkar og hlökkum til komandi samstarfs.
Breytingar á starfsfólki eru alltaf einhverjar þegar líður að hausti og
hjá okkur fer Áslaug Unadóttir í kennslu við Háaleitisskóla, Laritza (Larý) P. Ricardo
er farin í barneignarfrí og Rut Vestmann sem er á Þúfu e.h. í Háskóla Íslands. Þökkum við þeim
kærlega fyrir samstarfið og óskum þeim velfarnaðar á nýjum slóðum.
Bkv. kennarar Garðasels |
| meira |
| |
| 8.7.2010 | Leikskólinn Hjallatún |
| Sumarfrí |
| Sumarfrí Hjallatún hefst mánudaginn 12. júlí. Börn og starfsfólk mæta aftur til starfa mánudaginn 16. ágúst. Hafið það gott í fríinu og við sjáumst hress og kát aftur í ágúst. |
| meira |
| |
| 6.7.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Sumarleyfi Heiðarsels hefst 12. júlí |
| Foreldrar athugið að sumarleyfið hefst mánudaginn 12. júlí. Nemendur og kennarar mæta svo endurnærð aftur á Heiðarsel mánudaginn 16. ágúst eftir sól og sumaryl. Sumarkveðja frá kennurum Heiðarsels. |
| meira |
| |
| 29.6.2010 | Bókasafn Reykjanesbæjar |
| Sjárvarfang og sumar á sýningu Hjallatúns |
| Börn á Hjallatúni bjuggu í vetur til fiskabúr í tilefni af haf-þema listahátíðar í ár. Fiskabúrið er nú komið á Bókasafnið en leikskólabörn á Hjalltúni sýna nú verk sín á listsýningum leikskólabarna á safninu. Þar er einnig að finna sjávarfang á hafsbotni og leirverk frá sumri.Sýningin stendur til föstudagins 9. júlí og er opin á opnunartíma safnsins, sem er virka daga klukkan 10:00 - 19:00. |
| meira |
| |
| 28.6.2010 | Leikskólinn Holt |
| Sumarleyfi hefst |
| Foreldrar athugið að sumarleyfið hefst frá og með þriðjudeginum 29. júní og komum við öll endurnærð aftur til vinnu þriðjudaginn 3. ágúst. Óskum ykkur öllum ánægju og gleði í sumarleyfinu. |
| meira |
| |
| 28.6.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Sumarleyfi Tjarnarsels hefst 29. júní |
| Foreldrar athugið að sumarleyfið hefst frá og með þriðjudeginum 29. júní og komum við öll endurnærð aftur í Tjarnarsel þriðjudaginn 3. ágúst. Óskum ykkur öllum ánægju og gleði í sumarleyfinu framundan. |
| meira |
| |
| 25.6.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Formleg deildarskipti fóru fram í dag |
| Í dag kl. 14:00 fór fram formleg deildarskiptu, sem er árlegur viðburður í leikskólanum, þar sem öll börn deildarinnar færast ásamt leikskólakennurum sínum yfir á næstu deild, sem er ætluð þeirra aldursstig. Börnin mættu í fallegum röðum inni í sal leikskólans þar sem þau stóðu í röðum eftir deildum og sungu uppáhalds sönglag skólaársins. Í lokin afhentu fulltrúar viðkomandi deildar hana með formlegum hætti. |
| meira |
| |
| 24.6.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Mennta- og menningarmálaráðherra boðaði til fundar um útinám og kennslu |
| Inga María Ingvarsdóttir, leikskólastjóri sat fund inni í Menntamálaráðuneytinu, 23. júní s.l., um útinám og útikennslu, sem mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir boðaði til og stjórnaði. Ráherrann vildi kynna sér útinám og kennslu frá sjórnarhóli sem felstra og boðaði á fundinn fulltrúa frá félagasamtökum, skólum á öllum stigum, stofnunum og einstaklinga sem hafa komið að þessum málaflokki.Fundurinn var mjög upplýsandi og skemmtilegur. |
| meira |
| |
| 23.6.2010 | Leikskólinn Tjarnarsel |
| Frábærar gjafir frá foreldrafélaginu |
| Leikskólinn vill þakka frábæru foreldrafélagi leikskólans fyrir gjafirnar sem formaður félagsins afhenti á sumarhátíðinni, en það voru tvær Sony myndavélar með öllu sem munu koma sér vel og einnig spýtudrenginn Gosa í eigin persónu. |
| meira |
| |
| 23.6.2010 | Leikskólinn Hjallatún |
| Sumarhátíð |
| Sumarhátíðin verður haldin á morgun, fimmtudaginn 24. júní kl. 14:00-15:30. Allir mega koma grímubúningi. Foreldrar og systkin velkomin! |
| meira |
| |
| 22.6.2010 | Leikskólinn Holt |
| Góð ferð kennara að baki |
| Kæru foreldrar þá erum við kennarar á Holti komnar heim eftir frábæra náms og kynnisferð til New York. Við skoðuðum afar áhugaverða leikskóla í hinni stóru New York og sátum námskeið í "Children´s museum of Manhattan" þar sem við fengum skemmtilega umfjöllun um hvernig hægt er að flétta vísindi í daglegt starf í leikskóla. Námskeiðið féll mjög vel að þeirri hugmyndafræði sem við erum að vinna með hér á Holti og gaf okkur margar nýja hugmyndir. Við kennararnir erum mjög ánægðar með ferðina og færum ykkur kæru foreldrar þakkir fyrir skilning og samvinnu varðandi ferðina. Hér til hliðar má sjá nokkrar myndir frá ferðinni. |
| meira |
| |
| 21.6.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Starfsmaður frá vinnuskólanum |
| Guðrún Elva Níelsdóttir verður í vinnu á Heiðarseli á vegum vinnuskóla Reykjanesbæjar til 30. júní, hún verður á Hól. Guðrún Elva er gamall nemandi frá Heiðarseli og er gaman að fá hana aftur hingað til okkar. |
| meira |
| |
| 18.6.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Myndir |
| Það eru komnar myndir frá krakkahestum og sumarhátíðinni 16. júní í myndasöfn. |
| meira |
| |
| 16.6.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Mikil gleði á sumarhátið |
| Sumarhátiðin sem var í dag tókst mjög vel. Börnin voru alsæl með hestana sem komu í morgun og fannst þeim skemmtilegt að fara á hestbak, mikil gleði ríkti einnig hjá þeim þegar einn hesturinn vinkaði bless með öðrum fram fætinum. Síðan kom íþróttaálfurinn eftir hádegi og gerði hann ekki minni lukku. Mikið var tekið af myndum í dag af börnunum og náðist ekki að setja þær inn í dag en þær verða settar inn á föstudag. |
| meira |
| |
| 16.6.2010 | Leikskólinn Hjallatún |
| Fleiri myndir |
| Hæ hó....
Þrjú ný myndaalbúm hafa bæst í myndabankann okkar frá Vesturgangi.... Albúmin eru frá þegar Íþróttaálfurinn kom í heimsókn, frá Íþróttadeginum okkar og Sumar á Hjallatúni 2010 þar sem sjá má alls kyns myndir úr svæðaskiptingunni eftir hádegi.
Góða skemmtun! |
| meira |
| |
| 15.6.2010 | Leikskólinn Heiðarsel |
| Sumarhátíð |
| Sumarhátíðin verður á morgun miðvikudaginn 16. júní frá 13:25-15:00. Leikkrókar verða á útisvæði og íþróttaálfurinn kemur í heimsókn. Boðið verður upp á grænmetis- og ávaxtahlaðborð. Foreldrafélagið verður með sölusýningu á listaverkum barnanna í salnum. Foreldrar og systkini velkomin. |
| meira |
| |