Reykjanesbær er sannkallaður íþróttabær og kannanir hafa sýnt að allt að 70% barna stunda einhverja íþrótt. Bærinn stuðlar að metþátttöku á þessu sviði með ýmsum hætti. Við höfum lagt mikla áherslu á að aðstaða til íþróttaiðkunar sé góð og búum vel að íþróttafélögum í bænum, til dæmis með því að gera þeim fært að ráða til sín toppþjálfara.
 |
Hvatagreiðslur Bærinn greiðir forráðamönnum kr. 7.000 fyrir hvert barn til niðurgreiðslu á menningar-, íþrótta- eða tómstundaiðkun barnsins. Öll íþrótta- og æskulýðsfélög sem hafa sett sér uppeldisleg markmið geta tekið þátt í verkefninu. Hvatagreiðslurnar er einnig hægt að nýta til niðurgreiðslu tónlistarnáms. Auk þess verjum við miklu til menningar-, íþrótta- og tómstundastarfs ungmenna því við metum mikils það uppbyggilega starf sem þar fer fram og vitum að forvarnargildi þess er mikið. Heildarframlag Reykjanesbæjar til íþrótta, tómstunda og tónlistarskóla er 700 milljónir á ári sem er 11% af rekstri bæjarins.
Foreldrar barna á aldrinum 14-18 ára þurfa að sitja fræðslufund til þess að virkja hvatagreiðslurnar. Rannsóknir hafa sýnt að áhættuhegðun ungmenna hefst helst á þessu aldursbili sem og brottfall úr íþróttum og eru fræðslufundirnir því tilraun til að ná til þessa aldurshóps og foreldra þeirra í forvarnarskyni. Á fundinum eru m.a. kynntar rannsóknir á áhættuhegðun ungmenna, s.s. áfengisneyslu og kynlífi, og ræddar leiðir til þess að koma í veg fyrir eða seinka henni.
Hvatagreiðslum er útlutað á mittreykjanes.is eftir að skráning hefur farið fram. |
 |
Íþróttir í Frístundaskóla Íþróttir eru liður í Frístundaskólastarfinu og eru æfingagjöld fyrir eina íþróttagrein innifalin í mánaðargjaldinu, sem og akstur til og frá æfingum. Íþróttaiðkun barna í Reykjanesbæ er því ekki háð því hvort foreldrar geti keyrt þau á æfingar og þau eru aldrei á æfingum á kvöldin.
Nánar um Frístunaskólann.
|
 |
Frítt í Sund Í Reykjanesbæ er frítt í sund fyrir öll börn til 16 ára aldurs. Það er ósk okkar að þetta framtak verði fjölskyldum bæjarins hvatning til hreyfingar, samvista og gleði. Öll börn í 1. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar fá á hverju vori í sumargjöf frá bæjarfélaginu, sundpoka ásamt sundkorti en þar geta þau safnað saman stimplum í ástundakort. Fyrir fullstimplað kort er hægt að fá veglegan vinning.
Vatnaveröld Vatnaveröld er ný 50 metra innisundlaug og vatnagarður við Sunnubrautina sérstaklega fyrir fjölskyldur. Í vatnagarðinum eru ýmiskonar rennibrautir og vatnsleikföng, ætluð yngri börnum. |
 |
Íþróttamannvirki Við vitum að til þess að öflugt íþróttalíf dafni enn frekar í bænum þarf vönduð íþróttamannvirki sem standast nútímakröfur. Uppbygging á þessu sviði hefur verið með mesta móti síðustu ár og hvergi er slegið slöku við. Meðal nýjunga má nefna fimleikahús og nýtt íþróttasvæði ofan Reykjaneshallar. |
Sparkvellir við hvern skóla Við alla grunnskóla bæjarins eru upplýstir, afgirtir og upphitaðir sparkvellir.
Útikörfuboltavellir Í Reykjanesbæ er körfuboltaíþróttin ein sú vinsælasta og hafa Suðurnesjamenn ávallt staðið þar vel að vígi. Nýverið var tekin í notkun ný gerð af útikörfuboltavelli við Holtaskóla og er annar fyrirhugaður við Njarvíkurskóla. Efnið í vellina er flutt inn frá Bandaríkjunum og eru þeir í hærri gæðaflokki en áður hefur tíðkast og skapa þeir jafnframt möguleika á betri nýtingu t.d. í bleytu. Stefnt er að því að slíkir vellir verði við alla grunnskóla bæjarins.
Fjöldi íþróttafélaga Körfuboltinn er tvímælalaust vinsælasta íþróttagreinin í Reykjanesbæ en alls ekki sú eina. Í bænum er lögð stund á badminton, fimleika, knattspyrnu, skotfimi, sund, tae kwon do, golf, siglingar, dans, hestamennsku og hnefaleika svo eitthvað sé nefnt. |