Flýtileiðir


Reykjanesbær fyrir



STUÐNINGUR VIÐ FJÖLSKYLDUNA


Stuðningur við fjölskylduna

Fjölskyldunni líður vel í Reykjanesbæ

Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags. Það á því að vera markmið hvers sveitarfélags að búa fjölskyldunni sem vænlegust skilyrði svo hún megi styrkjast og eflast sem best innan frá. Úr Fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar.

Umönnunargreiðslur að loknu fæðingarorlofi
Í Reykjanesbæ fá foreldrar 25 þúsund króna umönnunargreiðslu á mánuði ,eftir að fæðingarorlofi lýkur þar til barn fer í leikskóla, því við viljum gefa foreldrum aukinn möguleika á samvistum á mikilvægu þroskaskeiði barnsins. Ef foreldrar kjósa að vera heima með barninu í stað þess að senda það í leikskóla halda greiðslurnar áfram þar til barnið hefur nám í grunnskóla.

Sótt er um greiðsluna á íbúavefnum mittreykjanes.is og er hún háð því að fólk sæki kynningu á vegum bæjarins þar sem fjallað er um grundvallaratriði í uppeldi barna. Markmið kynninganna er að foreldrar þekki skyldur sínar í uppeldishlutverkinu, grundvallaratriði í þroska barna sinna og þá þjónustu sem býðst í bænum. Þannig teljum við okkur styðja og bæta þjónustuþætti sem snúa að þróun í barnauppeldi. Kynningarnar taka tvær kvöldstundir og eru haldnar mánaðarlega.<

Hvatagreiðslur - stuðningir til iðkunar menningar-, íþrótta- og tómstundastarfs
Reykjanesbær hóf hvatagreiðslur til barna og ungmenna í Reykjanesbæ árið 2008.
Foreldrar barna á aldrinum 6 - 18 ára geta nýtt hvatagreiðslurnar til niðurgreiðslu á viðurkenndu menningar-, íþrótta- eða tómstundastarfi.

Greiddar eru kr. 7.000 með hverju barni á hverju ári og geta foreldrar ráðstafað styrknum á mittreykjanes.is eftir að gengið hefur verið frá skráningu í viðurkennt menningar-, íþrótta- eða tómstundastarf.

Hvatagreiðslurnar eiga við um allt skipulagt menningar-, íþrótta- og tómstundastarf bæði í Reykjanesbæ og annars staðar. Hvatagreiðslurnar eiga líka við um Tónlistarskóla Reykjanesbæjar enda er menningarstarf ekki síður mikilvæg forvörn en íþróttir og nauðsynlegt að hver einstaklingur finni sér verkefni við hæfi.

Frítt í strætó
Í Reykjanesbæ er ókeypis fyrir alla í strætó. Vagnarnir ganga frá kl. 7:30 á morgnana til kl. 23:00 á kvöldin. Með því að gefa frítt í strætó aukum við umferðaröryggi, sköpum möguleika á fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi ungmenna og minnkum mengun. Strætó keyrir líka um helgar. Nánari upplýsingar um áætlunina eru á sbk.is.

Verndum þau
Barnavernd Reykjanesbæjar býður þeim stofnunum og félagasamtökum í bænum sem starfa með börnum og ungmennum fræðslu um hvernig bregðast skuli við ef grunur um vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og ungmennum vaknar.

Efni námskeiðsins byggir á bókinni „Verndum þau" eftir þær Ólöfu Ástu Farestveit og Þorbjörgu Sveinsdóttur en námsefnið er tekið saman af barnaverndarstarfsmönnum bæjarins og er það lagað að aðstæðum í Reykjanesbæ. Jafnframt fer fram kynning á starfi barnaverndar bæjarins.

Áfram ábyrg
Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar vinnur að því í samstarfi við Keflavíkurkirkju að bæta uppeldisskilyrði barna og efla fráskilda foreldra í uppeldishlutverkinu. Við vitum að báðir foreldrar eru mikilvægir börnum sínum í uppvextinum og því er mikilvægt að virkja þá í uppeldishlutverkinu. Velferð og vöxtur barnanna er háður samskiptum við foreldra þeirra og því hvernig foreldrum tekst að vera samstíga í uppeldishlutverkinu, hvort sem þeir búa saman eður ei.

Markmið verkefnisins er að draga saman rannsóknir, reynslu og þekkingu bæði starfsfólks FFR og kirkjunnar svo sú kunnátta megi nýtast til góðrar þjónustu við foreldra  og börn. Mikilvægt er að koma færni og þekkingu til allra sem að uppvexti barna koma, hvort heldur sem er foreldra eða fagfólks.

Boðið er upp á fræðslukvöld fyrir foreldra og námskeið fyrir börn foreldra sem hafa farið í gegnum skilnað eða sambúðarslit.

Frístundaskóli
Frístundaskólinn býður samfellda dagskrá fyrir börn í 1. - 4. bekk þar sem fléttað er saman íþróttaæfingum, listum, tómstundastarfi og fræðsluverkefnum ásamt næringu, heimanámi og hvíld. Markmiðið er að vinnudegi barnsins sé lokið á sama tíma og foreldranna svo fjölskyldan geti notið frítímans saman.

Frístundaskólinn starfar í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Hann tekur við að hefðbundnum skóladegi loknum og starfar til kl. 17:00. 
Einnig er boðið upp á frístundaúrræði fyrir fyrir fötluð börn í 5. - 10. bekk.

Uppeldi til árangurs
Markmið verkefnisins er að kenna foreldrum uppeldistækni, draga úr hegðunarerfiðleikum á heimilum, kenna foreldrum og kennurum hvernig taka skal á kvíða og þunglyndiseinkennum, draga úr þörf fyrir stofnanavistun vegna erfiðrar hegðunar og minnka lyfjanotkun. Verkefnið er unnið í samstarfi við HSS, Námsmatsstofnun og HÍ.

Með  þessu  vill  Reykjanesbær  stuðla  að  sterkri  sjálfsmynd unglinga og heilbrigði þeirra með fræðslu og stuðningi. Verkefnið er m.a. fjármagnað með fjárveitingu frá þremur ráðuneytum; Heilbrigðis-, félagsmála- og menntamálaráðuneyti til þriggja ára.

Verkefni sem falla undir Uppeldi til árangurs eru: SOS! Hjálp fyrir foreldra, Einkakennari og Félagar.

SOS! Hjálp fyrir foreldra Ókeypis uppeldisnámskeið
Boðið er upp á námskeiðið SOS sem er kennsla í uppeldistækni og hugsað sem hjálp fyrir foreldra og starfsfólk sem starfar með börnum. Boðið er upp á námskeiðið fyrir alla foreldra tveggja ára barna í Reykjanesbæ sem almenna forvörn. Foreldrum barna með hegðunarerfiðleika og ofvirkni er ráðlagt að sækja námskeiðið. Meginþorri starfsmanna leik- , frístunda- og grunnskóla hefur setið námskeiðið. Aðrir faghópar hafa einnig sótt námskeiðið. Sérstakur markhópur ársins 2008 verða aðfluttir foreldrar og dagmæður.Slík samhæfing uppeldisstefnu í heilu bæjarfélagi er einstök bæði hér á landi og erlendis og auðveldar það mjög alla samvinnu milli sérfræðinga,starfsfólks á uppeldisstofnunum og foreldra.

Einkakennari í uppeldi
Einkakennari í uppeldi er úrræði á vegum Barnaverndar- og Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar þar sem uppeldismenntað starfsfólk ráðleggur fjölskyldum í þjónustu Barnaverndar um uppeldi á heimilum þeirra út frá efni uppeldisnámskeiðsins SOS! Hjálp fyrir foreldra sem stendur öllum foreldrum barna á aldrinum 2 - 12 ára til boða að kostnaðarlausu. Einkakennarar, ráðleggja þannig foreldrum í þjónustu Barnaverndar um uppeldi barna sinna út frá efni hvers tíma og gefa persónulega ráðgjöf um uppeldi út frá aðstæðum og þörfum hverrar og einnar fjölskyldu.

Félagar
Félagar, eða "Friends for life" eins og það heitir á frummálinu, er námsefni sem ætlað er að draga úr kvíða og þunglyndi barna og unglinga. Námsefnið er upprunnið í Ástralíu en er notað víðsvegar um heim með góðum árangri. Með efninu lærist margs konar nauðsynleg færni sem nýtist við hversdagslega erfiðleika sem koma óhjákvæmilega upp í lífi allra. Lögð er áhersla á að þekkja eigin tilfinningar, skilja hvað veldur mismunandi tilfinningum og hvernig hægt er að hafa áhrif á eigin tilfinningar. Einnig er lögð áhersla á ólíka túlkun og viðbrögð við mismunandi aðstæðum. Kenndar eru aðferðir til að stuðla að frumkvæði við lausn á hvers kyns vanda, mikilvægi þess að gefa sjálfum sér klapp á bakið þegar vel gengur og gera raunhæfar kröfur til sjálfs sín og annarra. Erlendis hefur komið í ljós að með því að kenna Félaga er hægt að koma í veg fyrir, eða draga úr, hvers kyns tilfinningalegum erfiðleikum sem geta hrjáð ungmenni sem fylgja oft upp í fullorðinsárin sé ekkert að gert. Einnig hefur komið í ljós að þau börn sem hafa setið Félaga eru sjálfsöruggari og hamingjusamari.

Til baka


Reykjanesbær - Tjarnargata 12 - Póstfang 230 - Sími 421 6700 - Bréfasími 421 4667 - Kennitala 4707942169 - Póstur til vefstjóra - RSS straumur - Lagalegur fyrivari