Umhverfis- og skipulagssvið fer með skipulags-, umhverfis- og byggingarmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Það stýrir öllum framkvæmdum á vegum bæjarins og hefur eftirlit með viðhaldi fasteigna Reykjanesbæjar . Skrifstofa byggingarfulltrúa fer með eftirlit með byggingarreglugerð og sér um lóðaskráningu og skráningu fasteignamats. Framkvæmdastjóri er Guðlaugur H. Sigurjónsson. Hann annast stjórn verklegra framkvæmda, hefur umsjón með skipulagsmálum, nýbyggingum, viðhaldi fasteigna og rekstri gatnakerfis og er yfirmaður Áhaldahúss.
Byggingarfulltrúi starfar með byggingarnefnd og til hans berast teikningar af byggingum og breytingum á húsum. Hann hefur eftirlit með að mannvirki séu byggð samkvæmt samþykktum og ákvæðum byggingarreglugerða, ásamt yfirumsjón með lóðaskráningu og skráningu fasteignamats.
Byggingarfulltrúi er Einar Júlíusson.
Aðrir starfsmenn eru Sveinn Númi Vilhjálmsson verkfræðingur, Björn Samúelsson eftirlitsmaður fasteigna, Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir og Sigmundur Eyþórsson tæknifulltrúi.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ REYKJANESBÆJAR -opið allan sólarhringinn
Sími 420 3200 Forstöðumaður: Bjarni Karlsson garðyrkjustjóri. Hverfisvinir: hafðu samband við þinn hverfisvin í síma 420 3200 ef þú hefur ábendingar við þitt nánasta umhverfi og þeir koma til aðstoðar.
Helstu verkefni: - Viðhald gatna, gangstétta og göngustíga - Viðhald holræsa. Þjónustusamningur við verktaka - Uppsetning og viðhald umferðarmerkja - Viðhald umferðarljósa - Snjómokstur gatna, gangstétta og göngustíga. Samningur við verktaka ásamt bæjarvélum - Hálkueyðing gatna, gangstétta og göngustíga. Samningur v/verktaka - Viðhald opinna svæða. Samningur við verktaka - Viðhald almenningsgarða. Samningur við verktaka - Uppsetning og viðhald jólaskrauts og jólatrjáa. Samningur v/verktaka - Framkvæmdir við opinber hátíðarhöld s.s. 17. og fl. - Vörur og efnislager - Víðtæk þjónusta við stofnanir bæjarins - Hreinsun þ.e. gatnahreinsun, hreinsun opinna svæða og lóðahreinsun. Samningur við verktaka - Hreinsun holræsa. Samningur við verktaka - Hreinsun rotþróa. Samningur við verktaka |