Umhverfis- og skipulagssvið
Við trúum því að það sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum sé að stuðla að hamingju og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína, hafi sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast.
Við trúum því að það sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum sé að stuðla að hamingju og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína, hafi sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast.

UMFERÐARMÁL

Margt hefur áunnist í umferðaröryggismálum í Reykjanesbæ á undanförnum árum.
Af framkvæmdum sem bæta umferðaröryggi má nefna umferðarljós og hringtorg, lækkun hámarkshraða í 30 km hverfum og ýmsar smærri hraðahindrandi aðgerðir.

30 km. hámarkshraði í íbúðagötum

Reykjanesbær hefur frá árinu 2006 unnið skipulega að því að auka umferðaröryggi í sveitarfélaginu. Í því felst m.a. að koma í veg fyrir hraðakstur innan bæjarmarkanna sér í lagi í íbúðahverfum og í kringum skóla og gönguleiðir. Unnið hefur verið að gerð áætlunar um slysalausa sýn með aðstoð sérfræðinga FÍB, lögreglu, Vegagerðar, Umferðarstofu, Samstöðu og fleiri aðila. Þar er einnig stefnt að því að fjölga göngustígum, bæta aðgengi fatlaðra, auka og bæta umferðarmerkingar og gera fræðslu um umferðaröryggismál skilvirkari og betri. Aukin áhersla á almenningssamgöngur og gjaldfrjálsir strætisvagnar eru einnig hluti af þessari áætlun.

Umhverfis- og skipulagssvið gerði breytingar á umferðarhraða innan sveitarfélagsins sem eru stór liður í þeirri viðleitni bæjaryfirvalda að koma í veg fyrir umferðarslys í Reykjanesbæ. Hraðatakmarkanir eru almennt þannig að í íbúðargötum er hámarkshraði 30 kílómetrar. Hraði á stofnbrautum og aðalsamgönguæðum verður þó áfram miðaður við 50 kílómetra á klukkustund. Á það við þrátt fyrir að á sumum stofnbrautum séu einnig íbúðabyggingar.

Það er einlæg von okkar á Umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar að 30 km hverfi leiði til öruggara umhverfis og lægri slysatíðni í framtíðinni til hagsbóta fyrir bæði gangandi og akandi vegfarendur.

hvetjum við alla til að kynna sér vandlega kort hér að neðan þar sem merkt er inn hvar í sveitarfélaginu hraðatakmarkanir miðast við 30 km/klst og hvar hámarkshraði verður áfram 50 km/klst.

Rautt= 50 km - Gult=30 km

Keflavík sunnan Aðalgötu
Keflavík norðan Aðalgötu
Ytri Njarðvík
Innri Njarðvík 
Hafnir
Dalshverfi 1&2
Ásahverfi
Ásbrú 

Við hvertjum bæjarbúa til að senda okkur ábendinar á usk@reykjanesbæar.is 

Reykjanesbær - Tjarnargata 12- Póstfang 230 - Sími 421 6700 - Bréfasími 421 4667 - Kennitala 4707942169 - Póstur til vefstjóra - RSS straumur - Lagalegur fyrivari