Flýtileiðir


Reykjanesbær fyrir



TENGDAR STOFNANIR

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem eru: Reykjanesbær, Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Gerðahreppur og Vatnsleysustrandarhreppur. Sambandið vinnur að hagsmunamálum sveitarfélaganna og eflir og styrkir samstarf þeirra. Í sameiginlegum málum kemur það fram fyrir hönd sveitarfélaganna gagnvart ríkisvaldinu og öðrum. Sambandið annast samræmingu á fjárhags- og framkvæmdaáætlun sameiginlegra rekinna fyrirtækja og stofnana sem eru:

Almannavarnanefnd Suðurnesja
Almannavarnanefnd starfar með Almannavörnum ríkisins að skipulagi björgunar- og hjálparstarfa vegna hættu eða tjóns af völdum hernaðarátaka, náttúruhamfara eða af annarri vá sbr. lög um almannavarnir nr. 94/1962. Fulltrúar Reykjanesbæjar í almannavarnanefnd eru: Skarphéðinn Njálsson (D) Gunnar Þórarinsson (D) Almannavarnir ríkisins

Brunavarnir Suðurnesja
Brunavarnir Suðurnesja eru reknar af þremur sveitarfélögum: Reykjanesbæ, Garði og Vatnsleysustrandarhreppi. Viðkomandi bæjar- og sveitarstjórnir skipa stjórn BS sem er skipuð einum fulltrúa frá Garði, einum frá Vatnsleysustrandarhreppi og þremur frá Reykjanesbæ. Slökkviliðsstjóri er framkvæmdarstjóri BS í umboði stjórnar.

Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) starfar samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og er heilbrigðisnefnd kosin eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar. Heilbrigðisnefnd skipa 5 fulltrúar frá hlutaðeigandi sveitarfélögum auk fulltrúa atvinnurekenda og náttúruverndarnefnda.
HES hefur eftirlit með matvælavinnslu, íbúðarhúsnæði, veitinga- og gistihúsum, mengandi starfsemi, íþrótta-, heilbrigðis og menntastofnunum, baðstöðum sem og hunda og kattahaldi á Suðurnesjum.

Kalka : Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf
Sveitarfélögin Reykjanesbær, Garður, Sandgerðisbær, Grindavíkurbær og Vatnsleysustrandarhreppur eiga og reka sameignarfélagið Sorpeyðingarstöð Suðurnesja (S.S.). Tilgangur félagsins er að eiga og reka hina nýju móttöku-, flokkunar og eyðingarstöð Kölku í Helguvík.
Ennfremur að annast þjónustu á sviði sorphirðu og móttöku úrgangs í sveitarfélögunum og önnur verkefni á sviði úrgangs og endurvinnslumála.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er skóli Suðurnesjamanna og nemendur hans koma frá öllum byggarlögum svæðisins. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum (Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar) reka skólann í samstarfi við ríkisvaldið.

Reykjaneshöfn

Heilbriðisstofnun Suðurnesja
DS Dvalarheimili aldraðra

Hitaveita Suðurnesja

Samband íslenskra sveitarfélaga

Fjölbrautaskóli Suðurnesja er skóli Suðurnesjamanna og nemendur hans koma frá öllum byggðarlögum svæðisins auk þess sem alltaf eru í skólanum nokkrir nemendur sem koma annars staðar frá. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum (Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar) reka skólann í samstarfi við ríkisvaldið.



Reykjanesbær - Tjarnargata 12 - Póstfang 230 - Sími 421 6700 - Bréfasími 421 4667 - Kennitala 4707942169 - Póstur til vefstjóra - RSS straumur - Lagalegur fyrivari