12.5.2010 - - 112. fundur - Umhverfis- og skipulagsráð
112. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar haldinn miðvikudaginn 12. maí 2010 kl. 15:30 í fundarsal bæjarráðs Tjarnargötu 12.
Mættir: Sigríður Jóna Jóhannesdóttir formaður, Haraldur Helgason, Jón Ben Einarsson, Björgvin Árnason varamaður, Kristinn Jakobsson varamaður, Sveinn Númi Vilhjálmsson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri USK. Einar Júlíusson byggingarfulltrúi og Jóna Hrefna Bersteinsdóttir ritari sem jafnframt ritar fundargerð. __________
1. mál. Byggingarmál. a) Samráðsnefnd byggingarfulltrúa 151. fundur 8. apríl 2010. Lögð fram. Sjá fskj. 1.
b) Vinnureglur - flokkun veitingastaða. Samþykkt.
c) Framtíðarstaðsetning Þórsflutninga ehf. - frestað frá 17/3 2010. Vísað er til máls 1b) í fundargerð USK-ráðs 17. mars sl. Umsagnir um framtíðarstaðsetningu pylsuvagns Þórsflutninga við Keilisbraut hafa borist og eru jákvæðar. Samþykkt að veita leyfi til áramóta í samræmi við umsögn frá Kadeco.
2. mál. Skipulagsmál. a) Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2008-2024. Tillaga að aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024 var auglýst 29. maí til 31. júlí 2009. Alls bárust 11 umsagnir og 5 athugasemdir við tillöguna. Umhverfis- og skipulagsráð hefur farið yfir umsagnir og athugasemdir og tekið afstöðu til þeirra sbr. greinagerð dags. 10.03.2010. Tillögunni hefur verið breytt og kort uppfært til samræmis við svör ráðsins. Með fyrirvara um gildistöku breytinga á Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2005-2025 og niðurfellingu Svæðisskipulags Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Gerðarhrepps og Keflavíkurflugvallar um hljóðlínu flugumferðar, leggur Umhverfis- og skipulagsráð það til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024 og Umhverfisskýrslu skv. 3 og 5 gr. mgr. 18 gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Samþykkt að senda til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu.
b) Verklag við staðfestingu ákvarðana skipulagsnefnda. Lagt fram til upplýsinga.
c) Ósk um umsögn vegna endurskoðunar aðalskipulags Grindavíkurbæjar. Samkvæmt 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga óskar Grindavíkurbær eftir umsögn Reykjanesbæjar um tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010 – 2030 og þess óskað að umsögnin berist eigi síðar en 19. apríl 2010. Þar sem næsti fundur Umhverfis- og skipulagsráðs var haldinn eftir uppgefinn skilafrest staðfestir ráðið þá umsögn sem gefin var með fyrirvara fyrir hönd Reykjanesbæjar við drög að aðalskipulagi Grindavíkurbæjar þann 16. apríl sl.
d) Breyting á bílastæðum við Bjarkardal 28 - Húsanes ehf - frestað frá 17/3 2010. Með vísan til erindi Húsaness ehf. sem tekin var fyrir fund USK ráðs þann 17. mars sl. þá var Kanon arkitektum falið að gera umsögn um frávik frá deiliskipulagi vegan Bjarkardals 28. Umsögn frá Kanon arkitektum fylgir fundargerð. Nokkur atriði eru ekki í samræmi við deiliskipulagsuppdrátt og sérákvæði sem gilda fyrir Bjarkardal. Af framansögðu þá synjar USK þessari breytingu eins og hún er lögð fyrir. Framkvæmdastjóra falið að finna aðra lausn á málinu.
3. mál. Önnur mál. a) Umsókn um að taka Gryfjuna í fóstur- Heiðarskóli. Heiðarskóli fer þess á leit við bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ, að skólinn fái leyfi til þess að taka í fóstur “gryfjuna” sem er í norðurenda bæjarins. Umhverfis- og skipulagsráð fagnar innkomnu erindi og frumkvæði Heiðarskóla sem samræmist vel framtíðarstefnu bæjarins í umhverfismálum. Mikilvægt er að allar framkvæmdir þar séu í sátt við umhverfið og nágranna þess. USK er falið að hafa umsjón með verkefninu í samstarfi við Heiðarskóla.
b) Manngildissjóður - Úthlutanir Umhverfissjóðs 2010. Umhverfissjóður fékk úthlutun úr Manngildissjóði að upphæð kr. 1.000.000 fyrir árið 2010. Tvær umsóknir bárust og samþykkir ráðið framlagðan lista. Úthlutað verður úr sjóðnum við hátíðlega athöfn á næstunni.
Formaður þakkar nefndarmönnum og starfsmönnum fyrir ánægjulegt samstarf á kjörtímabilinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið. __________
Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 18. maí 2010. Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina 11-0.
|