Alþjóðlegi bangsadagurinn | Treystir bangsinn sér til þess að gista í Bókasafninu?

Í tilefni af Bangsadeginum 27. október mega börnin koma í Bókasafnið með bangsana sína og leyfa böngsunum að gista í Bókasafninu yfir nóttina. Tekið er á móti böngsum milli 13.00-18.00 á föstudeginum.

Bangsarnir gera eitthvað ógurlega skemmtilegt í bókasafninu á föstudagskvöldinu þar sem teknar verða myndir af þeim í bókasafns partý og þær birtar á facebook/Instagram síðu safnsins. Á laugardeginum á að vekja bangsana í Notalegri sögustund og þeir fara svo heim með eigendum sínum.

Mögulega mun apinn Níels lesa sögu fyrir bangsana sem mæta í sögustundina. Börn eru hvött til þess að mæta í náttfötum í Notalega sögustund kl. 11.30 laugardaginn 28. október og sækja bangsana sína í leiðinni. Þeir eru eflaust spenntir að komast heim aftur :)

 

Bangsadagurinn er haldinn hátíðlegur 27. október ár hvert á fæðingardegi Theodore Roosevelt. Hann var forseti Bandaríkjanna frá árinu 1901-1909. Fáir vita að hann var gjarnan kallaður Teddy en það er einnig enska orðið yfir bangsi.