Leshringur Bókasafnsins - öll velkomin
14.11 kl. 20:00-21:00
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Þriðja þriðjudag í mánuði yfir vetrartímann er leshringur í Bókasafni Reykjanesbæjar klukkan 20.00. Boðið er upp á kaffi og öll áhugasöm velkomin. Umsjón með klúbbnum hefur Unnur Ósk Wium Hörpudóttir, nemi í bókmenntafræði. Bókin sem hópurinn er að lesa núna er Þegar fennir í sporin eftir Steindór Ívarsson. Athugið að í þetta sinn hittist leshringurinn þriðjudaginn 14. nóvember kl. 20 sem er annar þriðjudagur.
Allir nýjir og gamlir lesendur velkomin!
Hvar: Bókasafnið
Hvenær: Þriðjudaginn 14. nóvember kl. 20.00
Gengið er inn norðanmegin við húsið (hjá bílastæði).
Hér er facebook hópur Leshringsins þar sem hægt er að fylgjast með hvaða bækur eru teknar fyrir.