Nágrannavarsla

baejarhlidljosmrnb

 

Nágrannavarsla er ein besta forvörn sem hægt er að grípa til gagnvart innbrotum, þjófnuðum og skemmdarverkum í íbúðarhverfum.Með því að taka hönd­um sam­an og vera vak­andi fyr­ir nærum­hverfi sínu má auka ör­yggi íbúa og öðl­ast þannig meiri hug­ar­ró. Í nágrannavörslu gera íbúar með sér samkomulag um eðli nágrannavörslunnar í hvert sinn.

Nágrannavarsla er ekki löggæsla heldur snýst hún um að íbúar standi saman og hafi auga með umferð um götuna sína. Verði íbúar varir við grunsamlegar mannaferðir, t.d. við hús nágranna sem þeir vita að er fjarverandi, er þeirra hlutverk að hringja í 112 og gefa lýsingu á atburðinum.

Vonast er til þess að hægt að útvíkka nágrannavörslu verkefnið til fleiri samfélagsverkefna hjá Reykjanesbæ.

Hvernig setur maður upp nágrannavörslu í sinni götu?

Það er ým­is­legt hægt að gera til að minnka lík­ur á inn­brot­um og hef­ur ná­granna­varsla sýnt sig sem góð for­vörn í þeim efn­um. Í henni felst að íbú­ar og ná­grann­ar taka sig sam­an til þess að sporna við inn­brotum og eigna­tjóni í sinni götu eða fjöl­býli. Mörg sveit­ar­fé­lög vinna mark­visst að því að setja upp nágranna­vörslu með að­stoð íbúa enda hef­ur reynsl­an ver­ið góð og nágranna­varsla skil­að ár­angri. Einnig er hægt að leita til okk­ar varð­andi ráð­gjöf ef setja á slíka vörslu upp.

Þeg­ar áhugi kvikn­ar um upp­töku ná­granna­vörslu þá þarf að huga að ýmsu.

Í hand­bók Sjóvá um ná­granna­vörslu má finna all­ar upp­lýs­ingar um hvernig á að setja upp ná­granna­vörslu skref fyr­ir skref. Þar er einnig að finna gátlista sem hjálpa þér að gera heim­ilið þitt örugg­ara ásamt ít­ar­efni um hvernig best er að sporna gegn inn­brot­um. Við hvetj­um fólk ein­dreg­ið til að kynna sér hand­bók­ina vel og fara yfir gátlist­ana.

Verkferill

Til ein­föld­un­ar þá höfum við sett ferl­ið upp í skref­um:

  1. Gott er að byrja á því að skoða handbók nágrannavörslu, þar koma fram allar helstu upplýsingar.
  2. Kannaðu áhuga meðal nágranna.
  3. Halda kynningarfund um nágrannavörslu fyrir fólkið í hverfinu og safna undirskriftum allra íbúa götunnar. Valdir eru a.m.k. einn tengiliður úr hópi íbúa í hverrfi götu, svokallaðir götustjóri.
  4. Í handbókinni er að finna ýmsa gátlista sem gott er að fara yfir til að gera heimilið sem öruggast og varna innbrotum.
  5. Pantaðu nágrannavörsluskilti og límmiða og settu upp í götunni þinni. Fulltrúar frá lögreglu og Reykjanesbæ afhenda íbúum skilti og límmiða. Skiltum á stærð við umferðarskilti verður komið fyrir í götu og íbúar fá tvo límmiða með merki nágrannavörslunnar til líma á rúður að framan og aftanveðri húseign sinni.

Kynningarfundur

Hér að neðan má sjá tillögu að dagskrá fundar þar sem nágrannavarslan er kynnt.

  1. Hvað er nágrannavarsla?
  2. Hvernig viljum við skipuleggja okkar nágrannavörslu?
  3. Hvernig gerum við heimili okkar öruggara?
  4. Farið yfir gátlista, bæklinga og ítarefni um öryggi heimilis, bílsins og fleira.
  5. Aðkoma sveitarfélagsins.
  6. Reynsla og aðkoma lögreglu.
  7. Láta lista ganga og fá undirskrift þeirra sem vilja vera með (nafn, heimilsfang, símanúmer, netfang)

Götustjóri

Götustjórar gegna lykilhlutverki í nágrannavörslunni. Til að nágrannavarslan sé virk þarf að hafa að minnsta kosti einn götustjóra í hverri götu.

Götustjóri er eins konar verkstjóri nágrannavörslunnar í sinni götu. Hann er tengiliður götunnar við lögregluna og Garðabæ, hann hefur lista yfir íbúa í götunni og hann sér um að upplýsa nýja íbúa um nágrannavörsluna. Æskilegt er að götustjóri boði til íbúafundar eða götugrills einu sinni á ári. Hægt er að hafa þá reglu að velja nýjan götustjóra við það tilefni. Þannig verða fleiri virkir og meðvitaðir um nágrannavörsluna.