Hér má sjá hvernig áherslur í stefnumótun hafa verið tengdar við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarstjóri mun kynna Stefnumótun Reykjanesbæjar 2020-2030 á íbúafundi í Bergi, Hljómahöll miðvikudaginn 11. september kl. 17:00 og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér málið. þetta er annar kynningarfundurinn um stefnuna, en sá fyrri var 13. júní sl.
Bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar, í samráði við fjölmarga aðila, hafa undanfarna mánuði unnið að mótun stefnu fyrir Reykjanesbæ til ársins 2030. Stefnan var til fyrri umræðu á hátíðarfundi bæjarstjórnar þann 11. júní sl. og hefur frá þeim tíma verið til kynningar á meðal íbúa og starfsmanna.
Íbúar geta sent inn athugasemdir og ábendingar á netfangið stefnumótun2030@reykjanesbaer.is til 15. september nk. Síðari umræða og afgreiðsla í bæjarstjórn fer svo fram að loknum þessum fundi og úrvinnslu athugasemda.