Heima- og stuðningsþjónusta

Eldra fólk getur fengið heima- og stuðningsþjónustu til að aðstoða við daglegt líf, heimilishald og félagsleg samskipti. Þjónustan er veitt bæði innan heimilis og utan. Með þjónustunni er unnið að því að efla og styrkja fólk til þess að það geti búið sem lengst heima. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og er komið til móts við þarfir hvers og eins.

Hverjir geta fengið þjónustuna?

Heima- og stuðningsþjónusta er fyrir einstaklinga sem búa á eigin heimili og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald eða persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar.

Þegar þú hefur sent inn umsókn fer fram mat á aðstæðum og þörfum þínum fyrir stuðning áður en þjónustan hefst.

Ertu með spurningar? Hafðu samband við Þjónustumiðstöðina á Nesvöllum í síma 420 3400 eða á netfangið nesvellir@reykjanesbaer.is.

Sækja um

Þú sækir um á vefnum Mitt Reykjanes. Þar velur þú Umsóknir og undir Velferð velur þú Umsókn um heima- og stuðningsþjónustu.

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Skattframtal síðasta árs eða staðgreiðsluyfirlit fyrir síðastliðna 3 mánuði.
  • Afrit af staðgreiðsluyfirliti maka (ef við á).
  • Rökstutt vottorð frá viðurkenndum sérfræðingum eða fagaðilum um þörf fyrir heima- og stuðningsþjónustu.

Þú getur líka fyllt út þetta eyðublað og sent á nesvellir@reykjanesbaer.is  eða prentað það út og skilað á þjónustuborðið á Nesvöllum.

Kostnaður

Kostnaður fer eftir tekjum hvers og eins. Hver klukkustund við þrif kostar samkvæmt gjaldskrá en önnur þjónusta er ókeypis.

Gjaldskrá Reykjanesbæjar