Skólar á Reykjanesi sýna mikinn vilja til að bætast í hóp UNESCO skóla á Íslandi

Til þess að varða leiðina að sjálfbæru samfélagi hefur skólasamfélagið á Suðurnesjum tekið höndum saman um samstarf við innleiðingu Heimsmarkmiðanna.

Sú sameiginlega vegferð hófst þann 4. september þegar að 15 skólar skrifuðu undir yfirlýsingu þess efnis að gerast UNESCO skóli innan tveggja ára.

„Sjálfbærni er sameiginlegt viðfangsefni allra sem íbúar á þessari jörð og mun verða um fyrirsjáanlega framtíð. Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna setja skýrari ramma utan um þau mikilvægu verkefni og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir til þess að komandi kynslóðir njóti velsældar og sjálfbærni sé tryggð. Jafnrétti, réttlæti, friður og virðing fyrir umhverfinu er á ábyrgð okkar alla og við viljum leggja okkar að mörkum til þess að ná árangri á þessum sviðum.“

Þannig hefst viljayfirlýsing um að hefja UNESCO skóla umsóknarferlið á næstu tveimur árum, sem 15 skólar af Reykjanesi hafa nú þegar skrifað undir.

UNESCO skólar skuldbinda sig til að vinna að verkefnum sem snúa að því að auka þekkingu á málefnum Sameinuðu þjóðanna og Heimsmarkmiðinum. Þverfagleg verkefni sem nýtast í ýmsum kennslustundum og passa vel inni í grunnþætti aðalnámsskrár leik- grunn- og framhaldsskóla. Flestir skólar vinna í dag að fjölmörgum verkefnum á hverju starfsári sem styðja við innleiðingu Heimsmarkmiðanna svo umsókn um að gerast UNESCO skóli er að stóru leiti aðeins alþjóðleg viðurkenning á því starfi og yfirlýsing um að vilja bæta í slík verkefni á komandi árum.

Hugmyndin af þessari sameiginlegu vegferð er sprottin hjá Suðurnesjavettvangi sem er samstarfsvettvangur sveitarfélagana á Suðurnesjum ásamt SSS, Kadeco og ISAVIA um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þá er Reykjanes jarðvangur einnig samstarfsaðili verkefnisins og leggur til verkefnastjóra sem mun styðja skólana á svæðinu með hlutlausum vettvangi fyrir samvinnu og tengslamyndun þvert á skóla, skólastig og sveitarfélög.

Sigrún Svafa Ólafsdóttir er verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes jarðvangi og GeoCamp Iceland segir að fundurinn í Hljómahöll hafi farið fram úr björtustu vonum. „Það er alveg frábært að sjá hve margir ætla að vera með og voru tilbúin að skrifa undir viljayfirlýsingu strax en ég veit að hinir skólarnir eru að ígrunda þetta, það er alltaf hægt að bætast við og enginn er að missa af tækifærinu. Okkar von er sú að allir skólar á svæðinu sláist í hópinn á næstu 2 árum. Það að taka þátt í UNESCO skóla uppbyggingunni verður vonandi eingöngu til þess að gera alla þá flottu vinnu sem þegar er unnin í skólunum enn sýnilegri í samfélaginu. Við í undirbúningsteyminu gætum ekki verið ánægðari með viðbrögðin við þessari metnaðarfullu hugmynd!“

Eva Harðardóttir formaður Félags Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi var þátttakandi á fundinum. Hún var himinlifandi yfir viðbrögðunum og talaði um að þessi samvinna um heimsmarkmiðin væri einstök. „Þetta verkefni er til fyrirmyndar fyrir annað svæðisbundið samstarf og samfélög á landinu sem vilja vinna að sjálfbærri þróun með því að efla staðbundna þekkingu og hnattræna vitund barna og ungmenna, en efling hnattrænnar borgaravitundar er einmitt eitt af meginmarkmiðum UNESCO-skólanetsins“.

Eftirfarandi 15 skólar hafa nú þegar skrifað undir viljayfirlýsingu um að hefja þá vegferð að gerast UNESCO skóli á næstu tveim árum:

  • Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ
  • Leikskólinn Völlur í Reykjanesbæ
  • Heilsuleikskólinn Skógarás í Reykjanesbæ
  • Leikskólinn Akur í Reykjanesbæ
  • Leikskólinn Gimli í Reykjanesbæ
  • Njarðvíkurskóli Reykjanesbæ
  • Holtaskóli í Reykjanesbæ
  • Heiðarskóli Reykjanesbæ
  • Stapaskóli í Reykjanesbæ
  • Háaleitisskóli í Reykjanesbæ
  • Sandgerðisskóli í Suðurnesjabæ
  • Gerðaskóli í Suðurnesjabæ
  • Grænaborg í Suðurnesjabæ
  • Fjölbrautaskóli Suðurnesja
  • Fisktækniskóli Íslands í Grindavík / Suðurnesjabæ

Eftirfarandi aðilar skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að styðja UNESCO skóla verkefnið:

  • Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
  • Sveitarfélagið Vogar
  • Reykjanesbær
  • Grindavíkurbær
  • Suðurnesjabær
  • Reykjanes jarðvangur / Reykjanes UNESCO Global Geopark
  • GeoCamp Iceland
  • Isavia
  • Kadeco