Útboð | Gervigras og fjaðurpúði á Reykjaneshöll

Númer: 1020624
Útboðsaðili: Reykjanesbær
Tegund: Framkvæmd
Útboðsgögn afhent: 18.06.2024 kl. 00:00
Skilafrestur: 08.07.2024 kl. 14:00
Opnun tilboða: 08.07.2024 kl. 14:02

Reykjanesbær, Framkvæmdasvið óskar eftir tilboðum í útvegun og lagningu gervigrass ásamt fjaðurpúða undir gervigrasið á Reykjaneshöll fjölnota íþróttahús í Reykjanesbæ samkvæmt skilmálum útboðslýsingar.

Núverandi gras á Reykjaneshöll er ónýtt og líkur eru á að fjaðurpúði undir því sé það einnig þar sem hann er 25 ára gamall og farin að láta á sjá.

Gervigrasið er 68,2m á breidd og 102,3m á lengd eða samtals 6.975m2m að flatarmáli. Fjaðurpúðinn er sömu stærðar og gervigrasið.

Vellinum skal skila fullfrágengnu með öllum vallarmerkingum og festingum fyrir knattspyrnubúnað s.s. stangir, mörk og annað. Verktaki leggur til allt efni, búnað, tæki og alla vinnu, sem þarf til að skila vellinum fullfrágengnu eins og því er lýst samkvæmt skilmálum útboðsgagna.

Útboðsyfirlit

  • Útboðsauglýsing: þriðjudagur, 18. júní 2024
  • Fyrirspurnatíma lýkur: þriðjudagur, 2. júlí 2024 kl 14:00
  • Svarfrestur rennur út: fimmtudagur, 4. júlí 2024 kl 14:00
  • Skilafrestur tilboða: mánudagur, 8. júlí 2024 kl 14:00
  • Opnun tilboða: mánudagur, 8. júlí 2024 kl 14:02
  • Upphaf verktíma:  Við undirskrift samnings
  • Lok verktíma:  Eftir samkomulagi við verktaka 
  • Kröfur til bjóðenda:  Sérstakar kröfur gerðar um hæfni og reynslu bjóðanda

Útboðsgögn verða tilbúin 18. júní 2024. Þeir sem áhuga kunna að hafa á að bjóða í verkið, Gervigras og fjaðurpúði á Reykjaneshöll, geta fengið þau send með því að senda ósk þar um á innkaupastjori@reykjanesbaer.is

Vinsamlega hafið nafn fyrirtækis sem gerir tilboðið, nafn á tengilið sem vinnur tilboðið ásamt símanúmeri hans/hennar og tölvupóstfangi

Ekki verður um formlegna opnunarfund að ræða þar sem útboðið er rafrænt. Opnunarfundargerð verður send að opnun lokinni þar sem fram kemur hverjir senda inn tilboð og heildarupphæð tilboðs.

Verkefnið auglýst á heimasíðu Reykjanesbæjar og á Útboðsvefur.is