1500. fundur

23.01.2025 08:15

1500. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn á Tjarnargötu 12, 23. janúar 2025, kl. 08:15

Viðstaddir: Bjarni Páll Tryggvason formaður, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir bæjarstjóri, Margrét A. Sanders, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Að auki sátu fundinn Margrét Þórarinsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Guðný Birna Guðmundsdóttir boðaði forföll, Sverrir Bergmann Magnússon sat fyrir hana.

1. Leikskólinn Drekadalur (2022100203)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mætti á fundinn.

Farið yfir stöðu framkvæmda við leikskólann Drekadal.

2. Fundargerð stjórnar Eignasjóðs 16. janúar 2025 (2025010010)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mætti á fundinn.

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eignasjóðs.

Fylgigögn:

Fundargerð 16. fundar stjórnar Eignasjóðs 16. janúar 2025

3. Almenningssamgöngur (2019090564)

Margrét Lilja Margeirsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála mætti á fundinn.

Lagt fram uppfært minnisblað sem tekið var fyrir á síðasta fundi bæjarráðs.

Bæjarráð felur Guðlaugi H. Sigurjónssyni sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og Margréti Lilju Margeirsdóttur verkefnastjóri skipulagsmála að vinna áfram í málinu í samræmi við efnisatriði minnisblaðs.

4. 30 ára afmæli Reykjanesbæjar - lokaskýrsla (2024010135)

Halldóra G. Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs mætti á fundinn.
Kynnt lokaskýrsla um viðburði sem í boði voru á 30 ára afmælis Reykjanesbæjar.

Bæjarráð þakkar afmælisnefndinni fyrir vel unnin störf og greinagóða lokaskýrslu.

Fylgigögn:

Lokaskýrsla við lok 30 ára afmælisárs

5. Þjónusta sveitarfélaga 2024 - niðurstöður könnunar (2025010324)

Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn.

Kynnt niðurstaða þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var frá 22. nóvember 2024 til 6. janúar 2025 um þjónustu sveitarfélaga 2024.

Fylgigögn:

Reykjanesbær þjónustukönnun 2024

6. Húsnæði Keilis – Grænásbraut 910 (2023030333)

Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mætti á fundinn.

Lagður fram undirritaður kaupsamningur ásamt fylgigögnum.

7. Stapagata 20 - erindi vegna lóðar (2025010337)

Lagt fram erindi frá eigendum lóðar Staðagötu 20.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

8. Reykjanesbær f.h. Samsuðs - umsókn um tækifærisleyfi (2025010208)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

9. Umsagnarmál í samráðsgátt (2025010342)

Endurskoðun á lögum um rammaáætlun.
Með því að smella hér opnast skýrsla starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun.

Drög að frumvarpi um einföldun og skilvirkari leyfisveitingar.
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum.

Umsagnarmál lögð fram.

Fylgigögn:

Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um mál nr. S-232-2024

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 4. febrúar 2025.