61. fundur menningar- og þjónusturáðs Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 24. janúar 2025 kl. 08:30
Viðstaddir: Trausti Arngrímsson formaður, Birgitta Rún Birgisdóttir, Elfa Hrund Guttormsdóttir, Gunnar Jón Ólafsson og Sverrir Bergmann Magnússon.
Að auki sátu fundinn Sóley Guðjónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Eva Stefánsdóttir boðaði forföll og sat Gunnar Jón Ólafsson fundinn í hennar stað.
Sóley Guðjónsdóttir vék af fundi kl. 9.
1. Menningarsjóður – opnað fyrir umsóknir (2025010356)
Menningar- og þjónusturáð vekur athygli á að nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í menningarsjóð Reykjanesbæjar þar sem hægt er að sækja um styrki í fjölbreytt verkefni sem efla menningarlíf í Reykjanesbæ. Menningar- og þjónusturáð hvetur alla sem luma á skemmtilegum hugmyndum að verkefnum til að sækja um í sjóðinn. Opið er fyrir umsóknir til 10. febrúar og sótt er um í gegnum Mitt Reykjanes.
2. Bókasafnið í Hljómahöll - staða (2022110463)
Guðný K. Bjarnadóttir forstöðumaður bókasafnsins mætti á fundinn og fór yfir stöðuna vegna flutnings bókasafnsins í Hljómahöll.
3. Kynning frá Reykjaneshöfn vegna komu skemmtiferðaskipa (2025010292)
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs og Hjörtur M. Guðbjartsson, formaður atvinnu- og hafnarráðs, mættu á fundinn og kynntu átak um markaðssetningu Keflavíkurhafnar sem viðkomustaðar fyrir smærri skemmtiferðaskip. Fyrirhugaður er samráðsfundur menningar- og þjónusturáðs og atvinnu- og hafnarráðs í febrúar.
4. 30 ára afmæli Reykjanesbæjar - lokaskýrsla (2024010135)
Guðlaug M. Lewis menningarfulltrúi fór yfir verkefni og viðburði sem haldnir voru á nýliðnu afmælisári og hvernig til tókst.
Menningar- og þjónusturáð þakkar verkefnastjórn afmælisársins fyrir vel unnin störf en jafnframt öllum þeim sem sóttu styrk í afmælissjóðinn og stóðu fyrir frábærum verkefnum og viðburðum sem hjálpuðu til við að fagna 30 ára afmælisári sveitarfélagsins.
5. Uppfærsla á hönnunarstaðli Reykjanesbæjar (2024020301)
Reykjanesbær hefur unnið með auglýsingastofunni Hvíta húsinu að uppfærslu á markaðsefni og hönnunarstaðli sveitarfélagsins. Vinnan er á lokametrunum og var lögð fram fyrir menningar- og þjónusturáð til kynningar og umræðu.
6. Kynning á breyttu skipulagi – ný upplýsingatæknideild (2025010293)
Guðlaug M. Lewis menningarfulltrúi fór yfir breytingar hjá menningar- og þjónustusviði sem tóku gildi um áramótin. Ný upplýsingatæknideild varð til og þangað færðust kerfis- og notendaþjónusta auk ýmissa UT verkefna frá Þjónustu og þróun.
7. Listasafn Reykjanesbæjar - ný sýning (2025010359)
Úthaf er einkasýning Ívars Valgarðssonar og verður í Listasafni Reykjanesbæjar.
Ívar Valgarðsson (f. 1954) er listamaður sem hefur áhuga á eðli hlutanna. Hann notar ofur kunnuglegan og algengan efnivið til að búa til innsetningar sem fjalla á ljóðrænan hátt um hvernig skynjun skapar heiminn. Ívar hefur skapað nýtt verk fyrir sýninguna, Úthaf, innsetningu sem tekur heilt sýningarrými og samanstendur af 178 ljósmyndum og málverki. Úthaf fjallar um mikilfengleika hafsins sem umlykur Reykjanesbæ og einstaklingseðli upplifunar. Auk nýja verksins eru einnig verk sem spanna listamannsferil Ívars. Hér er því fágætt tækifæri til að kynna sér skarpskyggni listamannsins og trúfestu við ákveðna aðferðafræði um árabil. Tími er ávallt til staðar í verkum hans. Sköpunarferlið endurspeglast oft í tímalegri upplifun áhorfenda. Þessi upplifun á tíma er mögulega mesti grundvallarþáttur náttúrunnar – og fyrir Ívari er náttúran forsenda alls.
Sýningastjóri Úthafs er Gavin Morrison.
Gavin Morrison er skoskur rithöfundur og sýningarstjóri sem býr í Bandaríkjunum. Hann er að skrifa bók um samband Donald Judd við Ísland fyrir Lars Müller Publishers í Zürich, sem verður gefin út árið 2026.
Listasafn Reykjanesbæjar mun gefa út bók sem tekur til alls myndlistarferils Ívars Valgarðssonar.
Útgáfan er unnin í samstarfi við Hörð Lárusson, einn af eigendum Kolofon hönnunarstofu, textar eru eftir Gavin Morrison, þýðing Helga Soffía Einarsdóttir, myndvinnsla Vigfús Birgisson.
Bókin kemur út á sýningartímanum.
Úthaf er styrkt af Safnasjóði og listamaðurinn er styrktur af Myndlistarsjóði.
8. Þjónusta sveitarfélaga 2024 - niðurstöður könnunar (2025010324)
Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup um þjónustu sveitarfélaga 2024 lagðar fram, en könnunin var framkvæmd frá 22. nóvember 2024 til 6. janúar 2025.
Fylgigögn:
Þjónusta sveitarfélaga 2024 - Reykjanesbær - niðurstöður könnunar Gallup
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 4. febrúar 2025.