Skila þarf gögnum til skrifstofu Reykjanesbæjar fyrir 15. hvers mánaðar þannig að launagreiðslur geti átt sér stað fyrsta virka dag næsta mánaðar.
Athugið að sé staðfestingu ekki skilað í tvo mánuði samfellt er litið svo á að þjónusta hafi stöðvast.
Ekki er heimilt að greiða meira en tvo mánuði í einu.
Vegna persónuverndarsjónarmiða skal fylla inn númer þjónustunotanda. Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver Reykjanesbæjar ef þig vantar númerið.
Vinsamlegast hafið samband við ráðgjafa fjölskylduþjónustu velferðarsviðs ef óskað er eftir annarri tilhögun á þjónustunni í síma 421-6700 og fjolskylduthjonusta@reykjanesbaer.is
Útlagður kostnaður vegna starfsmanns er að hámarki kr. 3.000.- og greiðist af Velferðarsviði Reykjanesbæjar samkvæmt framlögðum kvittunum.
Leggi starfsmaður til bifreið skal hann fá greiddan kostnað vegna hans skv. vinnuskýrslu, þó að hámarki 100 km. á mánuði.
Mælst er til að liðveislan fari fram utan heimilis notanda.