Reykjanesbær eignaumsjón óskar eftir iðnaðarmönnum/verktökum til frágangs í leikskólanum Drekadal
Reykjanesbær óskar eftir áhugasömum iðnaðarmönnum og verktökum til að ljúka frágangi bæði innanhúss og utanhúss í leikskólanum Drekadal.
Verkið felur í störf í:
- Húsasmíði: Húsasmíðameistari / Verktaki í húsasmíði.
- Málun: Málaraverktaki / verktaki í málun.
Verktakar taka við framkvæmdum eins og staðan er í dag og ljúka við þrjár deildir af sex, þ.e. deildir 4, 5 og 6.
Skoðun á verkstað:
Áhugasamir verktakar eru hvattir til að mæta í kynningu á verkstað þann 9. janúar 2025, kl. 10:00.
Til að staðfesta mætingu skal senda skilaboð á netfangið Hreinn.a.kristinsson@reykjanesbaer.is.
Kröfur til verktaka:
- Verktaki þarf að sýna fram á skuldleysi gagnvart opinberum gjöldum.
- Verktaki þarf að sýna fram á nægan mannafla til að sinna verkinu.
- Verktaki þarf að hafa reynslu af framkvæmdum á opinberum byggingum.
- Verktaki skal vera löggiltur meistari í viðkomandi iðngrein.
Gagnaöflun:
Verktakar skulu senda eftirfarandi gögn í síðasta lagi mánudaginn 13. janúar 2025:
- Húsasmíði:
- Tímagjald fyrir faglærða starfsmenn:
- Meistara
- Sveina
- Nema
- Verkafólk
- Álagning á efniskaup
- Verkfæragjald
- Akstursgjald
- Málun:
- Tímagjald fyrir faglærða starfsmenn:
- Meistara
- Sveina
- Nema
- Verkafólk
- Einingarverð í spörslun (pr. m²):
- Einingarverð í málun (pr. m²), með inn- og úthornum og öðrum nauðsynlegum frágangi:
Við hvetjum áhugasama til að sækja um og leggja fram umbeðin gögn tímanlega.