Frá 25 ára afmæli Dagdvalar aldraðra
Boðið var til veislu á Nesvöllum síðasta dag nóvembermánaðar til að fagna 25 ára afmæli Dagdvalar aldraðra. Inga Lóa Guðmundsdóttir fyrrum forstöðumaður Dagdvalarinnar fór yfir söguna, velunnarar Dagdvalarinnar tóku til máls og Vox Felix kórinn söng við mikinn fögnuð. Eins og góðri afmælisveislu sæmir var boðið upp á kræsingar.
Saga Dagdvalar aldraðra í flutningi Ingu Lóu Guðmundsdóttur verkefnastjóra á Velferðarsviði:
„Það var árið 1992 sem félagsþjónustan í Keflavík ákvað að opna dagvist fyrir eldri borgara bæjarins eftir könnun sem fram hafði farið á þörf fyrir slíka þjónustu.
Dagdvöl er stuðningsúrræði fyrir aldraðra sem búa í heimahúsum. Dagdvölin var til húsa að Suðurgötu 12-14 þar sem íbúð í kjallarar hafði verið breytt fyrir starfssemina . Inga Lóa Guðmundsdóttir var ráðin forstöðumaður þann 1. ágúst 1992 en það var svo þann 23. september 1992 sem fyrstu dvalargestirnir komu í dagdvölina .Það var ákveðið að þetta þjónustuúrræði kallaðist dagdvöl en ekki dagvist. Leyfi hafði fengist frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 10 einstaklinga á dag. Starfsemin er fjármögnuð með daggjöldum frá ríkinu en bærinn leggur til húsnæði og rekstur þess.
Það var fljótlega ljóst að þetta var úrræði sem hentaði öldruðum bæjarbúum vel og að húsnæðið væri ekki nógu stórt. Því var farið að vinna að því að fá til afnota allan kjallarann að Suðurgötu 12-14 og fleiri leyfi frá ráðuneytinu. Við sameiningu og stækkun bæjarins árið 1994 varð þörfin enn meiri og fengust loks fleiri leyfi eða þrjú frá ráðuneyti árið 1998, önnur þrjú árið 2000 og svo þrjú árið 2003. Þarna voru komin samtals 19 leyfi en það dugði ekki til. Einnig var mikil þörf fyrir það að minnisskertir aldraðir gætu fengið svona úrræði og var farið að sækja um sértæk leyfi fyrir minnissjúka eða að einhver af þeim 19 leyfum væru sérstaklega fyrir þá einstaklinga. Það síðan árið 2004 sem fjögur leyfi fengust viðurkennd. Þar voru því komin 15 almenn leyfi og fjögur fyrir minnissjúka. Árið 2007 komu svo 2 leyfi til viðbótar fyrir minnissjúka.
Það var síðan árið 2008 sem starfseminni var skipt upp í almenna dagdvöl og dagdvöl fyrir minnissjúka. Almenn dagdvöl fluttist í þjónustumiðstöðina að Nesvöllum, Njarðarvöllum 4, í apríl 2008 og þar eru nú leyfi fyrir 15 einstaklinga. Dagdvöl fyrir minnissjúka flutti síðan í Selið, Vallarbraut 4 í maí 2008 og fengust þá loks fimm leyfi til viðbótar í nóvember 2008 þannig að það eru í dag leyfi fyrir 11 minnissjúka einstaklinga.
Það er alveg ljóst að þörfin er enn meiri i bæði fyrir almenna dagdvöl og minnissjúka svo við þurfum að halda vöku okkar og sækja um til ráðuneytis.“
Forstöðumaður öldrunarþjónustu Nesvöllum er María Rós Skúladóttir.