Horft yfir hluta gamla bæjarins, m.a. Smáratún og Hátún. Ljósmynd: OZZO
Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í verkið: „Smáratún og Hátún - Endurbygging.“
Verkið felst í jarðvegsskiptum, lagnavinnu og yfirborðsfrágangi.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
- Uppgröftur á lausu efni 5.460 m3
- Frárennslislagnir 1.650 m
- Fyllingar 4.460 m3
- Malbik 4.760 m²
Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 15. júní 2018.
Útboðsgögn verða afhent (á USB-lykli eingöngu) á Verkfræðistofu Suðurnesja ehf., Víkurbraut 13, Reykjanesbæ, frá og með mánudeginum 5. febrúar 2018. Tilboð verða opnuð á sama stað 23. febrúar 2018, kl. 11:00.