Flugvél frá Wow air yfir byggð í Reykjanesbæ.
Isavia hefur opnað fyrir niðurstöður mælinga við Grænás á áhrifum flugumferðar á íbúa og byggð. Nú geta íbúar fylgst með hljóðstigi frá flugumferð á rauntíma. Jafnframt gert betur grein fyrir því í ábendingum hvaða flug skapa ónæði, eins og segir á heimasíðu Isavia.
Á íbúafundi sem Isavia hélt um miðjan maí sl. kom fram að mælistöðvar yrðu þrjár í Reykjanesbæ, ofan við Eyjabyggð og við Háaleitisskóla til viðbótar við Grænás. Um er að ræða fyrsta fasa kerfisins sem hefur verið settur í loftið. Í fasa tvö verða flugupplýsingar tengdar við hljóðmælingarnar. Einnig er stefnan að setja upp loftgæðamæla, að því er fram kom á áðurnefndum íbúafundi.
Samkvæmt upplýsingum á vef Umhverfisstofnunar eru hættumörk hávaða talin vera við 80 - 85 dB jafngildishljóðstig eða við styttri hljóðtoppa 120 - 130 dB. Hljóð frá þotu í flugtaki í 200 m fjarlægð er þar sögð vera 100 dB. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Umhverfisstofnunar