Frá lestrarstund í Njarðvíkurskóla.
Sálfræðinemi í Háskóla Íslands ætlaði að gera rannsókn á gagnsemi tveggja mismunandi lestrarkennsluaðferða í Njarðvíkurskóla í Reykjanesbæ. Í rannsóknina þurfti hún 10 nemendur á yngsta stigi sem væru að glíma við alvarlegan lestrarvanda. Svo margir nemendur með lestrarvanda á því stigi fundust ekki í skólanum á því aldursbili og því varð að breyta rannsókninni. Þess má geta að um 370 nemendur eru í skólanum.
Gyða Margrét Arnmundsdóttir staðgengill fræðslustjóra segir að svona tilvik séu alltaf litin alvarlegum augum og skoðuð vandlega til að læra af þeim. Farið hefur verið yfir kennslu barna á yngsta stigi skólans og segir Gyða Margrét að sú skoðun hafi leitt í ljós að skortinn megi rekja til lestrarstefnu skólans þar sem mikil áhersla er lögð á góða samvinnu heimilis og skóla.