Reykjanesbær endurgeldur greiðann og býður í sund

Reykjanesbær býður íbúum í Hafnarfirði, Kópavogi, Álftanesi, Garðabæ, Norðlingaholti, Breiðholti, Hólmsheiði og Almannadal að nýta sér glæsilega aðstöðu í Vatnaveröld án endurgjalds á meðan heitavatnslaust verður á þessum svæðum frá mánudagskvöldi 19. ágúst til miðvikudagsins 21. ágúst vegna viðgerðar á suðuræð Veitna.

Með þessu vilja íbúar Reykjanesbæjar endurgjalda sams konar boð þegar heitavatnslaust varð í nokkra sólarhringa á Suðurnesjum sl. vetur þegar hraunrennsli rauf lögnina sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til íbúa á Suðurnesjum.

Í Vatnaveröld eru glæsilegar 25m sundlaugar úti og inni, stór rennibraut, innileikjagarður fyrir yngstu börnin, heitir pottar, gufubað, sauna ofl.

Sjá nánar https://www.reykjanesbaer.is/is/mannlif/utivist/sundlaugar/vatnaverold-waterworld