Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna endurskoðunar á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Frá staðfestingu Svæðisskipulags Suðurnesja 2008-2024 hafa orðið margvíslegar breytingar á mikilvægum forsendum. Því hefur svæðisskipulagsnefndin ákveðið að endurskoða stefnu svæðisskipulagsins sem tekur til sameiginlegra hagsmuna sveitarfélaga á Suðurnesjum s.s. íbúaþróunar og búsetu, atvinnulífs, auðlinda, innviða, loftslagsmála, náttúruvár og heimsmarkmiða.
Verkefnislýsing er aðgengileg á skrifstofu SSS, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbær, á vefsíðu www.sss.is/svaedisskipulag og á vefsíðum sveitarfélaga á Suðurnesjum og Isavia.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna skal skila til skrifstofu SSS eða á netfangið sss@sss.is. Athugasemdafrestur er til og með 10.10.2021.
Samvinnunefnd um Svæðisskipulag Suðurnesja.
Áshildur Linnet, formaður