Tæplega 17% starfandi íbúa Reykjanesbæjar vinna á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur m.a. fram í könnun sem MMR skoðanakönnunarfyrirtækið gerði í október sl. fyrir Atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar. Sé horft til svæða vinna flestir íbúar Reykjanesbæjar á Keflavíkurflugvelli eða um 21%.
„Þetta sýnir að stór hluti starfandi íbúa leggur út á Reykjanesbrautina á hverjum einasta degi til sinna starfa og sækir vinnu inn á afar stórt atvinnusvæði. Samkvæmt könnuninni eru þeir sem sækja vinnu á höfuðborgarsvæðið að meðaltali með hærri laun en þeir sem starfa í RNB. Fyrir því geta legið ýmsar ástæður, m.a. að þeir sem eru í hlutastörfum sækja væntanlega ekki vinnu út af svæðinu“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri