Þekkingarseturs Suðurnesja - merki
Þekkingarsetur Suðurnesja auglýsir eftir tveimur háskólanemum í sumarstörf hjá setrinu. Þekkingarsetrið er miðstöð rannsókna í náttúruvísindum og er staðsett í Sandgerði.
Sumarstörfin fela í sér fjölbreytt verkefni er snúa meðal annars að skipulagningu og framkvæmd sumarnámskeiða fyrir börn og þátttöku í verkefni um þróun raungreinabúða á Reykjanesi fyrir grunn- og framhaldskólanemendur, sem unnið er í samstarfi við GeoCamp Iceland.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólanemi - kostur að stundað sé nám í raunvísindum eða menntunarfræðum.
- Stundvísi, frumkvæði, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áhugi á því að starfa með börnum og ungmennum. Reynsla á því sviði er kostur.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Sumarstörfin eru á tímabilinu 1. júní til 16. ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars. Umsóknir ásamt kynningarbréfi og ferilskrá skulu berast í tölvupósti á netfangið thekkingarsetur@thekkingarsetur.is.
Nánari upplýsingar veitir Hanna María Kristjánsdóttir, forstöðumaður, í síma 423-7555 eða í gegnum netfangið hanna@thekkingarsetur.is