Þúsundir skemmtu sér fallega á Ljósanótt

„Sólin gerir auðvitað gott betra“ sagði Guðlaug María Lewis, verkefnastjóri Ljósanætur í skýjunum eftir vel heppnaðan og sólríkan laugardag á Ljósanótt. „Við fögnuðum sérstaklega 30 ára afmæli Reykjanesbæjar með hreint út sagt frábærri tónlistarveislu og flugeldasýningu sem landsmenn fengu að njóta með okkur í beinni útsendingu.“

Skipuleggjendur hátíðarinnar telja að hún hafi verið með þeim fjölmennari og að tugþúsundir gesta hafi tekið þátt í dagskrá laugardagsins enda margt til skemmtunar. Að sögn Guðlaugar var virkilega góð og jákvæð stemning á svæðinu og langsamlega flestir staðráðnir í að vera með ljós í hjarta á Ljósanótt eins og lagt var upp með. „Við höfum auðvitað áhyggjur eins og aðrir af hópamyndun og ölvun unglinga sem virðist orðið samfélagslegt vandamál sem þjóðin þarf að taka höndum saman um að stemma stigu við. Eftir því sem við best vitum á þessari stundu gekk þetta stórslysalaust hjá okkur og fyrir það erum við þakklát.“

Síðasti dagur Ljósanætur er í dag og enn geta gestir sótt sýningar, tónleika og tívolí og þannig klárað það sem þeir hafa ekki komist yfir. Hátíðinni lýkur í kvöld með tónleikum Herberts Guðmundssonar og kórs Keflavíkurkirkju í Keflavíkurkirkju.