Umhverfisvaktin 4.-11. feb

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

 

Lokað á Heiðarvegi 24 og 25 vegna framkvæmda

Vegna framkvæmda verður lokað fyrir umferð á Heiðarvegi 24 og 25 frá hádegi mánudaginn 4. febrúar til þriðjudagsins 11. febrúar. Þar þarf að grafa og skipta út heimtaug og brunnum

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar .