Allir með í Aðventugarðinum!
Aðventan nálgast nú óðfluga með öllum sínum dásemdum. Aðventugarðinum var hleypt af stokkunum fyrir síðustu jól, sem tilraunaverkefni, og fékk hann fádæma góðar viðtökur hjá bæjarbúum. Undirbúningur fyrir opnun garðsins í ár er nú kominn á gott skrið og er stefnt að svipuðu fyrirkomulagi og í fyrra en nú stendur til að opið verði í sölukofum bæði laugardaga og sunnudaga í desember svo og á Þorláksmessu.
Í þessu verkefni, eins og svo mörgum öðrum, er það þátttaka íbúa sem skiptir sköpum. Við þurfum fólk til að selja varning í sölukofunum og við þurfum fólk til að standa fyrir viðburðum og dagskrá í Aðventugarðinum. Við hvetjum því alla sem vettlingi geta valdið til þátttöku í þessu bráðskemmtilega verkefni.
Opið fyrir umsóknir um sölukofa og viðburðahald
Í dag opnum við fyrir umsóknir um sölukofa en þeir eru lánaðir endurgjaldslaust til söluaðila. Því fjölbreyttari varningur sem í boði verður, því skemmtilegra verður að skoða úrvalið í garðinum. Þess vegna hvetjum við alla áhugasama til að senda inn umsókn.
Í dag er einnig opnað fyrir umsóknir fyrir þá sem vilja standa fyrir viðburðum, dagskrá eða uppákomum í Aðventugarðinum og því eru allir sem luma á skemmtilegum hugmyndum hvattir til að senda inn umsókn. Greitt verður fyrir slík verkefni en greiðslur ráðast af umfangi og eðli verkefnanna.
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember og eru umsóknarformin aðgengileg hér fyrir neðan. Allar nánari upplýsingar um Aðventugarðinn eru veittar af menningarfulltrúa Reykjanesbæjar í gegnum netfangið sulan@rnb.is eða í síma 421-6700.
Umsókn fyrir sölupláss í jólakofa í Aðventugarðinum:
Umsókn fyrir sölupláss
Umsókn um viðburðahald, uppákomur eða dagskrá í Aðventugarðinum:
Umsókn um viðburðarhald