Mótun menntastefnu

Taktu þátt í að móta menntastefnu Reykjanesbæjar

Reykjanesbær vinnur nú að því að uppfæra menntastefnu sína sem er frá árinu 2016. Stefnunni er ætlað að vera heildarmynd og innblástur fyrir leik- og grunnskóla auk íþrótta- og tómstundastarfs bæjarins þar sem menntun og velferð barna og ungmenna er höfð að leiðarljósi.
Lesa fréttina Taktu þátt í að móta menntastefnu Reykjanesbæjar
Sibba að kenna krakkajóga

Krakkajóga með Sibbu gífurlega vinsælt

Í tilefni af heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ bauð Bókasafn Reykjanesbæjar upp á krakkajóga í streymi á Facebook síðu safnsins.
Lesa fréttina Krakkajóga með Sibbu gífurlega vinsælt
Stapaskóli

Nýstárlegur Stapaskóli

Stapaskóli í Innri Njarðvík, sem um 2ja ára skeið hefur starfað í bráðabirgðahúsnæði við Dalsbraut,  hefur nú flutt starfsemi sína í fyrsta áfanga framtíðarhúsnæðis skólans. Undirbúningur að byggingu annars áfanga, sem mun hýsa íþróttahús og sundlaug, er hafinn og er stefnt að því að framkvæmdir við…
Lesa fréttina Nýstárlegur Stapaskóli
Gunnar Helgason að leiða námskeið í skapandi skrifum

Skapandi krakkar á Suðurnesjum

Almenningsbókasöfn Suðurnesja stóðu fyrir námskeiðum í skapandi skrifum sem rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason leiddi.
Lesa fréttina Skapandi krakkar á Suðurnesjum
Ísland

Fylgjum fyrirmælum!

Neyðarstjórn Reykjanesbæjar hefur, þegar þetta er ritað, haldið 48 fundi frá því að hún var sett á laggirnar í byrjun mars 2020. Fundargerðir Neyðarstjórnar eru aðgengilegar hér og vil ég hvetja fólk til að kynna sér þær. Neyðarstjórn Reykjanesbæjar hefur því hlutverki að gegna að samhæfa aðgerðir …
Lesa fréttina Fylgjum fyrirmælum!
Anna Sofia Wahlström

Tilnefningar: Íslensku menntaverðlaunin 2020

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur tilkynnt tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2020. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Sjá tilnefningar >  Anna Sofia Wahls…
Lesa fréttina Tilnefningar: Íslensku menntaverðlaunin 2020
Reykjanesbær

Lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði

Reykjanesbær lækkar fasteignaskatt atvinnuhúsnæðis enn frekar                            Fyrir nokkru samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar að lækka álagningarstuðul fasteignaskatts á C-stofn atvinnuhúsnæðis á næsta ári úr 1,60% af fasteignarmati í 1,55%. Sú lækkun hefði þýtt 30 milljón króna lækkun te…
Lesa fréttina Lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði
Reykjanesbær

Reykjanesbær undirbýr endurfjármögnun 8,4 milljarða vegna Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í kvöld að veita bæjarstjóra heimild til að vinna að endurfjármögnun 8,4 milljarða skuldar við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR). Með endurfjármögnuninni mun Reykjanesbær kaupa aftur eignir sem seldar voru til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar á…
Lesa fréttina Reykjanesbær undirbýr endurfjármögnun 8,4 milljarða vegna Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf.
Lyngmói 17

Lyngmói 17 settur í almenna sölu.

Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. hafa sett Lyngmóa 17 í almenna sölu.
Lesa fréttina Lyngmói 17 settur í almenna sölu.
Strætisvagn

Grímuskylda í Strætó

Frá og með mánudeginum 5. október, þurfa þeir sem ferðast með strætisvögnum hjá Reykjanesbæ að nota andlitsgrímur á meðan  ferðinni stendur. Þetta á ekki við um börn fædd 2005 og seinna.   Þeim viðskiptavinum sem ekki bera andlitsgrímur er óheimilt að nýta sér almenningssamgöngur.  Viðsk…
Lesa fréttina Grímuskylda í Strætó