367. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa var haldinn að Grófinni 2 þann 20. ágúst 2024 kl. 09:00
Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Hilmar Örn Arnórsson verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Maríanna Hvanndal Einarsdóttir forstöðumaður skráninga, Sigurður Þór Arason fulltrúi og Rúna Osborne fulltrúi/ritari.
1. Umsókn um stöðuleyfi / Bakkastíg 14 (2024080251)
Sótt er um stöðuleyfi fyrir tveimur 40 feta gámum. Meðfylgjandi er mynd sem sýnir staðsetningu gáms. Eigandi lóðarinnar hefur gefið leyfi fyrir gámunum, ásamt eigendum að Bakkastíg 12.
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 20. ágúst 2025.
2. Tilkynningaskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi / Háteigur 18 (2024080239)
Tilkynnt er um mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild- og leyfi. Um er að ræða styttingu á vegg um 1,2 metra og nýtt hurðargat í sama vegg.
Embætti byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.
3. Umsókn um stöðuleyfi / Sunnubraut 36, í porti vestan við skólann (2024080226)
Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir 1 stk. frístundahús í byggingu, meðfylgjandi er grunn-, útlits- og sniðmynd
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 20. ágúst 2025.
4. Umsókn um stöðuleyfi / Hafnargata 44 (2024080215)
Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir u.þ.b. 10 m² matarvagni.
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 20. ágúst 2025.
5. Faxagrund 3 (2024080187)
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I. Um er að ræða viðbyggingu við núverandi húsnæði. Einnig er sótt um að sameina matshluta 1 og 2.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:30.