370. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa var haldinn í Grófinni 2 þann 9. október 2024, kl. 08:45
Viðstaddir: Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Hilmar Örn Arnórsson verkefnastjóri byggingarfulltrúa, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Margrét Lilja Margeirsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Maríanna Hvanndal Einarsdóttir forstöðumaður skráninga, Sigurður Þór Arason fulltrúi og Rúna Osborne fulltrúi/ritari.
1. Umsókn um stöðuleyfi / Berghólabraut 3 (2024090632)
Sótt er um stöðuleyfi til eins árs, fyrir einum 40 ft. gámi og einum 10 ft. gámi. Meðfylgjandi er mynd sem sýnir staðsetningu gáma.
Stöðuleyfi samþykkt með fyrirvara um samþykki frá bæjarstjórn.
2. Sólvallagata 6A - A og C álma (2024090321)
Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III. Um er að ræða uppbyggingu á A og C álmu.
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
3. Djúpivogur 2, 3, 4 og 6 - Merkjalýsing (2024080429)
Óskað er eftir samþykki á merkjalýsingu fyrir Djúpavog 2, 3, 4 og 6.
Merkjalýsing staðfest.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:00