684. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn í Merkinesi, Hljómahöll, 5. nóvember 2024, kl. 17:00
Viðstaddir: Birgitta Rún Birgisdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Harpa Sævarsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Margrét A. Sanders, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Helga Jóhanna Oddsdóttir boðaði forföll, Birgitta Rún Birgisdóttir sat fyrir hana.
Sigurrós Antonsdóttir boðaði forföll, Hjörtur Magnús Guðbjartsson sat fyrir hana.
Margrét Þórarinsdóttir boðaði forföll, Harpa Sævarsdóttir sat fyrir hana.
1. Fundargerðir bæjarráðs 17., 24. og 31. október 2024 (2024010003)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders, Harpa Sævarsdóttir og Bjarni Páll Tryggvason.
Tillaga frá Margréti A. Sanders (D) að vísa máli fjögur frá fundargerð bæjarráðs 17. október til frekari vinnslu bæjarlögmanns lögð fram. Tillagan felld með 7 atkvæðum meirihlutans, bæjarfulltrúi Umbótar situr hjá, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiða atkvæði með tillögunni.
Harpa Sævarsdóttir (U) tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 3 frá fundargerð bæjarráðs 31. október
„Í ljósi Helguvíkur / Bergvíkur verkefnisins er ólíklegt að hægt verði að fara í þessa niðurdælingu sem Carbfix verkefnið krefst til lengri tíma litið á því svæði sem tilraunaniðurdæling fer fram. Óski Carbfix eftir áframhaldandi leyfi þykir okkur í Umbót svæðið ekki vera vel til þess fallið. Heillavænlegra væri að finna svæði sem er ekki svo nærri núverandi og framtíðaríbúðauppbyggingu í Reykjanesbæ. Ég samþykki því ekki lið 3.“
Harpa Sævarsdóttir, Umbót
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiða atkvæði á móti máli 4 frá fundargerð bæjarráðs frá 17. október.
Harpa Sævarsdóttir (U) greiðir atkvæði á móti máli 2 frá fundargerð 17. október 2024.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Umbótar sitja hjá í máli 7 frá fundargerð bæjarráðs 17. október og máli 5 frá fundargerð bæjarráðs 31. október.
Margrét A. Sanders (D) lýsir sig vanhæfa að greiða atkvæði með 2. máli frá fundargerð bæjarráðs 31. október 2024.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 1487. fundar bæjarráðs 17. október 2024
Fundargerð 1488. fundar bæjarráðs 24. október 2024
Fundargerð 1489. fundar bæjarráðs 31. október 2024
2. Fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs 18. október og 1. nóvember 2024 (2024010213)
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 18. október til sérstakrar samþykktar.
Fimmta mál fundargerðarinnar Holtaskóli - deiliskipulag (2024010471) samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjötta mál fundargerðarinnar Tillaga að breytingu á aðalskipulagi athafnasvæði AT12 (2019060056) samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjöunda mál fundargerðarinnar Hjallalaut 15 - niðurstaða grenndarkynningar (2024070531) samþykkt 11-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar Heiðarsel - færanlegar kennslustofur við leikskóla (2024100200) samþykkt 11-0 án umræðu.
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 1. nóvember til sérstakrar samþykktar.
Fyrsta mál fundargerðarinnar Breyting á aðalskipulagi - Ásbrúarlína (2019060056) samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjötta mál fundargerðarinnar Tjarnabraut 36 - breyting á skipulagi (2024100273) samþykkt 11-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar Sólvallagata 12 - gistiheimili (2024040445) samþykkt 11-0 án umræðu.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 349. fundar umhverfis- og skipulagsráðs - 18. október 2024
Fundargerð 350. fundar umhverfis- og skipulagsráðs - 1. nóvember 2024
3. Fundargerð velferðarráðs 17. október 2024 (2024010214)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir, Valgerður Björk Pálsdóttir og Margrét A. Sanders.
Harpa Sævarsdóttir (U) tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 2 frá fundargerð velferðarráðs 17. október
„Við í Umbót viljum vekja athygli á þeirri erfiðu stöðu sem velferðarsvið stendur frammi fyrir. Af þeim fjölmörgu verkefnum sem sviðið stendur frammi fyrir viljum við ítreka þá miklu þörf sem er á bættri þjónustu við fötluð börn í Reykjanesbæ.
Biðlistar velferðarsviðs telja 27 börn á bið eftir stuðningsfjölskyldum, 6 börn á bið eftir skammtímavistun. Af þeim 25 börnum sem eru komin með 2ja sólarhringa þjónustu á mánuði, bíða 20 börn eftir aukinni þjónustu, allt frá 6 sólarhringum upp í 14 sólarhringa á mánuði. 18 börn eru í frístundaúrræði Skjólsins en þar eru 3 á bið. Næsta haust er von á 9 börnum til viðbótar. 40 börn eru svo að bíða eftir einstaklings og hópastarfi. Það vantar sárlega aðstöðu fyrir alla þessa starfsemi. Hlévangur hefur komið til tals hjá velferðarsviði sem þjónustumiðstöð fyrir fatlaða og aðstandendur þeirra. Ljóst er að veruleg þörf er á úrbótum þessa málaflokks. Tryggja þarf fjármagn til þessa verkefnis.“
Harpa Sævarsdóttir, Umbót
Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 436. fundar velferðarráðs 17. október 2024
4. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 17. október 2024 (2024010206)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Hjörtur Magnús Guðbjartsson.
Guðbergur Reynisson (D) tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 17. október
„Ferðamálin hafa að mér finnst legið lengi í dvala í Reykjanesbæ.
Eftir fund okkar bæjarfulltrúa með forstjóra Icelandair fyrir nokkru þá varð ég hugsi um mikilvægi þess að Reykjanesbær fari að taka fyrir alvöru þátt í þessum risastóra atvinnuvegi.
Eftir að hafa rýnt fundargerðir menningar- og þjónusturáðs sé ég að ferðamál eru ekki mikið til umræðu og því vil ég breyta og legg til að ferðamálin verði færð úr menningar- og þjónusturáði yfir í atvinnu- og hafnarráð þar sem ég hef trú á að þau fái þá athygli sem ferðamál og atvinna tengd þeim eiga skilið.
Enn fremur ættu ferðamál að vera miklu stærri hluti af stefnu bæjarins í atvinnumálum.
Það þarf að fara að hugsa miklu stærra í markaðssetningu Reykjanesbæjar, og bara lítið dæmi eru að engar merkingar eru á Reykjanesbraut um að hér á Reykjanesinu sé neitt annað en Keflavíkurflugvöllur.
Ég legg það á atvinnu- og hafnarráð, þegar þau hafa fengið þennan málaflokk, að bæta úr þessu máli, svo bærinn okkar fari nú að blómstra sem ferðamannabær og í stakk búinn til að taka við hluta þeirra gesta sem landið sækja.
Þar með fengjum við líf í alla þá hluti sem við viljum byggja hér upp eins og menningu og íþróttastarf og uppbyggingu innviða bæjarins, sem við virðumst ekki geta byggt upp sjálf.“
Guðbergur Reynisson, Sjálfstæðisflokki
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 290. fundar atvinnu- og hafnarráðs 17.10.24
5. Fundargerð stjórnar Eignasjóðs 17. október 2024 (2024010212)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Harpa Sævarsdóttir (U) tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 2 frá fundargerð stjórnar Eignasjóðs 17. október
„Þessa dagana er unnið við að áætla fjárfestingar komandi fjárhagsárs. Er þar verið að horfa til þess að dreifa verkþáttum þ.e. lengja framkvæmdatíma á þeim verkefnum sem í gangi eru og vil ég koma aðeins inn á framkvæmdir Myllubakkaskóla
Þar hafa nemendur og starfsfólk unnið allra lengst við dreifða kennslu og sífellda flutninga á framkvæmdatímum sem staðið hafa yfir með fáum bilum frá árinu 2019. Nemendur hafa stundað nám í skólanum, í íþróttaakademíunni, í íþróttahúsinu á Sunnubraut, á malarvellinum, í svítum á lóð skólans og Skólavegi 1. Kennsludagar hafa verið skertir á tímum sem hafa verið hvað erfiðastir og börn sækja sundkennslu í sundlauginni á Sunnubraut og íþróttir ýmist í íþróttahúsinu á Sunnubraut og Reykjaneshöllinni.
Íþróttahúsið á Sunnubraut hýsir þá nú kennslu fyrir bæði Myllubakkaskóla og Holtaskóla og eru báðir skólar með skerta kennslu af þeim sökum. Einnig skerðir þetta fyrirkomulag kennslustundir sem kenndar eru áður eða eftir íþróttatíma þar sem nemendur þurfa tíma til að koma sér á milli staða. Starfsfólk hefur þurft að finna leiðir til kennslu verkgreina þar sem smíði og textílmennt hafa ekki verið kennd vegna aðstöðuleysis og heimilisfræði hefur á tíðum ekki haft samastað.
Nemendur skólans hafa nú í á fimmta ár búið við þessar aðstæður og hafa þessar aðstæður haft áhrif á skólabraginn og félagslíf nemenda og starfsaðstæður starfsfólks skólans. Engin árshátíð var t.a.m. hjá Myllubakkaskóla á síðasta skólaári. 5 ár er hálf grunnskólaganga. Ég legg fram þá kröfu að framkvæmdir við Myllubakkaskóla verði hafðar í forgangi og tekið sé tillit til þessa langa tíma sem liðinn er frá upphafi framkvæmda.“
Harpa Sævarsdóttir, Umbót
Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 13. fundar stjórnar eignasjóðs 17. október 2024
6. Fundargerð lýðheilsuráðs 21. október 2024 (2024010208)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir, Valgerður Björk Pálsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 51. fundar lýðheilsuráðs 21. október 2024
7. Fundargerð sjálfbærniráðs 23. október 2024 (2024010210)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur Magnús Guðbergsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 55. fundar sjálfbærniráðs 23. október 2024
8. Fundargerð menningar- og þjónusturáðs 25. október 2024 (2024010209)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Sverrir Bergmann Magnússon.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 58. fundar menningar- og þjónusturáðs 25. október 2024
9. Tímabundnar breytingar á skipan embætta í bæjarstjórn og bæjarráði (2024010091)
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 31. október 2024 að Guðný Birna Guðmundsdóttir verði formaður bæjarráðs og Bjarni Páll Tryggvason verði varaformaður bæjarráðs á meðan tímabundin ráðning Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur í stöðu bæjarstjóra er í gildi.
Sömuleiðis mun Bjarni Páll Tryggvason verða forseti bæjarstjórnar og Sverrir Bergmann Magnússon verða 1. varaforseti tímabundið meðan Guðný Birna Guðmundsdóttir gegnir tímabundið stöðu formanns bæjarráðs.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Margrét A. Sanders.
Tímabundnar breytingar á skipan embætta í bæjarstjórn og bæjarráði samþykktar 11-0.
10. Breytingar á skipan fulltrúa í kjörnum ráðum (2024010091)
Íþrótta- og tómstundaráð: Birgir Már Bragason fer út sem aðalmaður, Valgerður Björk Pálsdóttir kemur inn sem aðalmaður.
Stjórn Eignasjóðs: Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir fer út sem aðalmaður, Birgir Már Bragason kemur inn sem aðalmaður.
Ekki bárust aðrar tilnefningar og eru breytingarnar samþykktar 11-0.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:40,