692. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn í Stapa, Hljómahöll, 4. mars 2025, kl. 17:00
Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Bjarni Páll Tryggvason, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helga Jóhanna Oddsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Margrét Þórarinsdóttir, Sighvatur Jónsson, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Að auki sat fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Díana Hilmarsdóttir boðaði forföll, Sighvatur Jónsson sat fyrir hana.
Sigurrós Antonsdóttir boðaði forföll, Hjörtur Magnús Guðbjartsson sat fyrir hana.
Margrét A. Sanders boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hana.
1. Fundargerðir bæjarráðs 20. og 27. febrúar 2025 (2025010003)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Til máls tók Guðbergur Reynisson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks:
14. mál fundargerðar bæjarráðs 27. febrúar 2025, mál 20221000203 Leikskólinn Drekadalur.
„Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjum fram eftirfarandi fyrirspurn og óskum eftir að hún verði bókuð.
Í dag eru liðnir tveir mánuðir og 4 dagar af nýju ári og enn sjáum við breytingar á áætlun sem samþykkt var í desember sl.
Í fjárfestingaáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2025 voru settar um 150 milljónir til að opna mætti fyrstu tvær deildir í Leikskólanum Drekadal. Nú þykir hins vegar skynsamlegast að opna skólann í heild, í stað þess að opna hann í áföngum, eins og til stóð. Kostnaður við það hljóðar upp á tæpar 340 milljónir skv. áætlun. Það fjármagn á að flytja af öðrum mikilvægum framkvæmdum, svo sem viðhaldi á utanhússklæðningu og útskiptingum á gluggum á leikskólanum Velli að upphæð 75 milljónir. Þrátt fyrir það er lagt til að sinna skuli nauðsynlegu viðhaldi á leikskólanum, sem væntanlega felur í sér aðra tilfærslu fjármuna úr rekstri ef ekki af fjárfestingalyklum.
Einnig skulu færðar á verkefnið 50 milljónir sem áætlaðar voru til hönnunar á nýjum grunnskóla á Ásbrú. Samtals verða því færðar um 125 milljónir af öðrum fjárfestingaverkefnum. Þá standa eftir um 65 milljónir samkvæmt áætlun og ljóst að verkefnið hefur greinilega ekki verið hugsað til enda og að haldið er af stað með ófjármagnað verkefni. Bundnar eru vonir við að tekjur berist í sjóði sveitarfélagsins sem nýta megi til greiðslu þess sem út af stendur og treyst á að starfsfólk sveitarfélagsins finni leiðir til hagræðingar.
Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins spyrjum því meirihluta Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar, hvaða auka tekjum er verið að vonast eftir, sem ekki þarf að ráðstafa í annað berist þær á annað borð?
Hvað þolir verkefnið mikinn niðurskurð eða hagræðingu án þess að það bitni á gæðum, ef ekki næst að fjármagna það til fulls?“
Guðbergur Reynisson, Helga Jóhanna Oddsdóttir og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki.
Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Guðbergur Reynisson og Helga Jóhanna Oddsdóttir.
Forseti gerir fundarhlé kl. 17:33
Fundur aftur settur kl. 17:44
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun meirihluta bæjarstjórnar og bæjarfulltrúa Umbótar:
14. mál fundargerðar bæjarráðs 27. febrúar 2025, mál 20221000203 Leikskólinn Drekadalur.
„Meirihluti bæjarstjórnar auk fulltrúa Umbótar í Reykjanesbæ vill árétta eftirfarandi atriði varðandi uppbyggingu leikskólans Drekadals.
Samningnum um byggingu leikskólans var rift seint á árinu 2024 og tók Reykjanesbær þá formlega yfir byggingu hússins.
Leikskólinn Drekadalur er um þessar mundir staðsettur í húsnæði Keilis og því gleðilegt að leikskólinn hafi getað hafið starfsemi að hluta til. Til að horfa heildrænt á verkefnið og til að reyna að leysa það á sem allra besta hátt var lagt til af stjórn Eignasjóðs að einblína á það verkefni sérstaklega í fjárfestingum til að geta klárað verkefnið í heild sinni fyrir opnun 120 barna leikskólans á árinu. Stjórn Eignasjóðs mat að það væri skynsamlegt til að ná að opna leikskólann sem fyrst og einnig til að vera ekki með starfsemi í húsinu á meðan uppbygging færi fram. Þótti það til heilla fyrir starfsemina og lagt fyrir leikskólastjóra og starfsfólk sem tóku vel í hugmyndina.
Sérstaklega skal tekið fram að mikilvæg viðhaldsverkefni munu fara fram á árinu í öðrum stofnunum auk þess sem byrjað verður að hanna nýjan grunnskóla á Ásbrú.
Taka skal fram að allir fulltrúar í bæjarráði Reykjanesbæjar samþykktu tillögu stjórnar Eignasjóðs.
Meirihluti bæjarstjórnar auk fulltrúa Umbótar er umhugað að gæta að fjárflæði verkefna og forgangsröðunar þeirra og metur að opnun á 120 barna leikskóla þurfi að vera í forgangi í hag íbúa Reykjanesbæjar.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon og Hjörtur Magnús Guðbjartsson bæjarfulltrúar Samfylkingar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason og Sighvatur Jónsson bæjarfulltrúar Framsóknar, Valgerður Björk Pálsdóttir bæjarfulltrúi Beinnar leiðar og Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi Umbótar.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 1504. fundar bæjarráðs 20. febrúar 2025
Fundargerð 1505. fundar bæjarráðs 27. febrúar 2025
2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 21. febrúar 2025 (2025010011)
Forseti gaf Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra orðið til að svara fyrirspurn Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúa Umbótar sem hún lagði fram á bæjarstjórnarfundi þann 7. febrúar 2025 vegna 12. máls fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. febrúar 2025 „Metanól – umsagnarbeiðni (2024080024)“.
Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (U) og lagði fram eftirfarandi bókun:
12. máls fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. febrúar 2025 „Metanól – umsagnarbeiðni (2024080024).
„Ég vil þakka bæjarstjóra fyrir skýr og greinargóð svör við spurningum mínum.
Mig langar að leggja til að þegar um er að ræða stór verkefni, sem hafa áhrif á Reykjanesbæ verði þau sérstaklega kynnt á skýran hátt fyrir bæjarráði og bæjarstjórn. Þetta myndi tryggja að slík mál fái þá athygli sem þau eiga skilið og að öllum kjörnum fulltrúm sé ljóst umfang og mikilvægi þeirra frá upphafi.“
Margrét Þórarinsdóttir, Umbót.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir og lagðir fram tillögu að 12.máli fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs frá 7. febrúar 2025 verði vísað til frekari vinnslu í umhverfis- og skipulagsráði. Samþykkt 11-0.
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 21. febrúar til sérstakrar samþykktar.
Sjötta mál fundargerðarinnar Ferjutröð 11 - breyting á skipulagi (2024120222) samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjöunda mál fundargerðarinnar Umhverfismiðstöð - köld geymsla (2025020333) samþykkt 11-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar Sólvallagata 11- fjölgun íbúða (2025020237) samþykkt 11-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar Tjarnarbraut 38 - breyting á byggingarreit (2025020126) samþykkt 11-0 án umræðu.
Tíunda mál fundargerðarinnar Brekadalur 65 (2025020214) samþykkt 11-0 án umræðu.
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 359. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 21. febrúar 2025
3. Fundargerð stjórnar Eignasjóðs 20. febrúar 2025 (2025010010)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 17. fundar stjórnar Eignasjóðs 20. febrúar 2025
4. Fundargerð menningar- og þjónusturáðs 24. febrúar 2025 (2025010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Sverrir Bergmann Magnússon.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 62. fundar menningar- og þjónusturáðs 24. febrúar 2025
5. Fundargerð sjálfbærniráðs 26. febrúar 2025 (2025010009)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 58. fundar sjálfbærniráðs 26. febrúar 2025
6. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 27. febrúar 2025 (2025010004)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Hjörtur Magnús Guðbjartsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 294. fundar atvinnu- og hafnarráðs 27. febrúar 2025
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:22.