Dalshverfi 1. og 2. áfangi - breyting á deiliskipulagi

 Dalshverfi 1. og 2. áfangi -  breyting á deiliskipulagi

Dalshverfi 1. áfangi breyting á deiliskipulagi

Lóðirnar eru skilgreindar sem verslunar- og þjónustusvæði á reit VÞ15 skv. aðalskipulagi. Þar verður áfram gert ráð fyrir verslun og þjónustu, en lóðafyrirkomulagi, byggingarreitum og byggingarmagni breytt. Á austur- og miðhluta svæðisins er gert ráð fyrir byggingu fyrir verslun og þjónustu ásamt almenningstorgi. Á vesturhluta reits er gert ráð fyrir almenningsgarði.

Skipulagsmörkum milli 1. og 2. áfanga Dalhverfis er hnikað lítillega. Athugasemdir eða umsagnir berist í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar eigi síðar en 9. mars 2025 málsnúmer: 64/2025

 

Dalshverfi 2. áfangi - breyting á deiliskipulagi

Með tillögu að deiliskipulagsbreytingu er bætt við 28 íbúðum í einnar hæðar sérbýli á vesturhluta svæðis, sem skilgreint er sem opið svæði í gildandi deiliskipulagi, norðan og sunnan Stapaskóla. Í norðurhluta verða 14 einbýlishús og í syðri hluta 10 einbýlishús ásamt tveimur parhúsalóðum. Einnig er gerð tillaga að hverfistorgi með leikskvæði og möguleika á verslunar-/þjónustuhúsnæði sunnan Dalsbrautar á móts við Stapaskóla. Skipulagsmörkum milli 1. og 2. áfanga Dalhverfis er hnikað lítillega Athugasemdir eða umsagnir berist í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar eigi síðar en 9. mars 2025 málsnúmer: 743/2024

Almennar fyrirspurnir berist á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is

Fylgigögn:

Dalshverfi I - deiliskipulagsuppdráttur

Dalshverfi I - skýringaruppdráttur

Dalshverfi II - deiliskipulagsuppdráttur

Dalshverfi II - skýringaruppdráttur