Hafnargata 44-46 tillaga að deiliskipulagi

Hafnargata 44-46 tillaga að deiliskipulagi

Tækniþjónusta SÁ leggur fram fyrir hönd Faxafells ehf. tillögu að deiliskipulagi fyrir Hafnargötu 44 og 46. Á lóðinni verði verslun og þjónusta á hluta jarðhæðar en 16 íbúðir á efri hæðum. Hámarkshæð byggingar verði fjórar hæðir.

Almennar fyrirspurnir berist á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is en athugasemdir eða umsagnir berist í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar eigi síðar en 30. mars 2025 málsnúmer: 65/2025