Horft yfir Reykjanesbæ frá smábátahöfn. Ljósmynd: Ozzo.
Fasteignaskattur tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega í Reykjanesbæ hefur um margra ára skeið verið tekjutengdur og afsláttur veittur einstaklingum og hjónum.
Tekjuviðmiðið, sem er hið sama 2018 og 2017, er þannig:

Þegar fasteignaskattur var lagður á í byrjun þessa árs 2018 var miðað við uppgefnar tekjur 2016 skv. skattaskýrslu og álagningu 2017. Afsláttur, sem veittur var af fasteignaskatti 2017, hélst því óbreyttur í upphafi árs 2018 en nú þegar tekjur 2017 og álagning opinberra gjalda hefur verið birt hefur afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega verið endurreiknaður.
Endureikningurinn verður birtur og frá og með mánudeginum 25. júní á www.island.is en breytingarseðlar verða ekki sendir út.