Útboð - Akstur almenningsvagna í Reykjanesbæ

Consensa fyrir hönd Reykjanesbæjar, óskar eftir tilboðum í akstur almenningsvagna samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Um er að ræða akstur almenningsvagna fyrir þrjár skilgreindar akstursleiðir sem eru hluti af almenningssamgöngukerfi bæjarins.

Hægt er að nálgast öll útboðsgögn án greiðslu á útboðssíðu www.tendsign.is.

Skilafrestur
Tilboð skulu skilað rafrænt í gegnum útboðskerfið eigi síðar en kl. 12:00, föstudaginn 7. mars 2025.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Consensa: www.consensa.is/utbod/auglyst-utbod
Við hvetjum alla áhugasama aðila til að kynna sér útboðsgögnin og leggja fram tilboð.