Dreifing á nýjum tunnum mun hefjast á næstu dögum á Suðurnesjum. Björgunarsveitir á svæðinu munu sjá um dreifingu fyrir hönd Kölku og biðjum við íbúa að taka vel á móti þeim og koma tunnunum vel fyrir við sín heimili. Áætlað er að dreifing í Reykjanesbæ hefjist í byrjun júní en nánari tímaáætlun eftir hverfum verður gefin út þegar nær dregur.
Allar tunnur verða nú merktar þeim fjórum flokkum sem verður safnað héðan í frá. Við sérbýli verður græna tunnan fyrir plastumbúðir og sú gráa fyrir pappír / pappa og munu merkingar á gömlu tunnurnar koma samhliða nýju tunnunum. Íbúar þurfa þó að hafa í huga að þar sem enn verður almennur úrgangur í gráu tunnunni verður pappír/ pappa og plastumbúðum áfram safnað í grænu tunnuna þangað til næsta tæming hefur átt sér stað.

Við hvetjum íbúa til þess að fylgjast með þegar gráa tunnan hefur verið tæmd og þrífa hana áður en hún verður nýtt fyrir pappa / pappír svo endurvinnsluefnið verði hreint og nothæft.
Samhliða nýjum tunnum verður körfum og bréfpokum einnig dreift til íbúa fyrir lífrænan eldhúsúrgang og er karfan sérstaklega ætluð inn í eldhús og hönnuð þannig að vel lofti um innihaldið.
Í fjölbýlishúsum verða körfur og pokar sett í stigaganga og eru íbúar hvattir til þess að sækja sér eina körfu og eitt pokabúnt
Nánar um breytingar á flokkun úrgangs á Suðurnesjum
Nánar um nýtt flokkunarkerfi.