Nú þegar áramótin eru liðin hvetjum við íbúa Reykjanesbæjar til að:
Hirða upp flugeldaruslið
Þeir sem eru með lítið rusl geta flokkað það heima í viðeigandi tunnur, en stórtækari flugeldanotendur gætu þurft að fara með sitt rusl í Kölku.
Skila jólatrjám á grenndarstöðvar
Reykjanesbær býður íbúum að skila jólatrjám við hlið grenndastöðva í sínu hverfi eftir helgina. Vinsamlegast leggið þau snyrtilega við hlið grenndarstöðva – en ekki fyrir framan gáma – svo þau fjúki ekki eða valdi óþægindum. Ekki skal skilja trén eftir við lóðamörk í bænum.
Starfsmenn Reykjanesbæjar munu sækja trén þangað og koma þeim í endurvinnslu.
Velja "Umhverfi" og svo "Grenndar- og endurvinnslustöðvar"
Að lokum viljum við biðja íbúa um að moka frá sorptunnum ef snjór hefur safnast fyrir, til að auðvelda aðgang og flýta fyrir losun.
Takk fyrir að hjálpa okkur að hreinsa til eftir jólin, saman stuðlum við að snyrtilegu umhverfi!