Hver á að hljóta Súluna?

Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Reykjanesbæjar

Menningar- og þjónusturáð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2024, Súlunnar. Tilnefningar þarf að senda í síðasta lagi 18. október á netfangið menningarfulltrui@rnb.is

Tilnefna skal einstakling, hóp eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bæjarfélaginu. Rökstuðningur þarf að fylgja tilnefningu.

Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna hér:

UPPLÝSINGAR UM VERÐLAUNAHAFA OG REGLUR