Íbúar í Reykjanesbæ eru margir hverjir sannkölluð jólabörn og leggja ofurmetnað í jólaskreytingar. Einnig eru mörg fyrirtæki og verslanir sem leggja sig fram við að glæða bæinn ljósum og lífi í mesta skammdeginu með fallegum utanhússkreytingum eða töfrandi jólagluggum. Þess vegna er líka einstaklega gaman að taka rúnt um bæinn á aðventunni og skoða öll þessi fallegu hús.
Þar sem bærinn okkar stækkar stöðugt geta glæsilegar jólaskreytingarnar leynst víða og því finnst okkur tilvalið að smella í laufléttan jólaleik þar sem íbúar geta komið með tillögur að jólahúsi og jólafyrirtæki eða verslun Reykjanesbæjar.
Ferlið er sáraeinfalt. Ef þú sérð hús eða fyrirtæki/verslun sem þér finnst ástæða til að vekja athygli á fyrir flottar skreytingar, þá smellirðu mynd af húsinu og/eða fyrirtækin og leggur götuheiti og númer á minnið. Síðan eru tillögurnar settar hér og myndunum hlaðið inn og götuheiti og númer skráð.
SENDA INN TILlÖGU
Húsasmiðjan í Reykjanesbæ ætlar að styðja við bakið á þessu uppátæki með gjafabréfi til þess húss og fyrirtækis sem verður hlutskarpast í leiknum.
Tekið er við tilnefningum til 12. desember.
Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 12. desember næstkomandi. Menningar- og þjónusturáð Reykjanesbæjar fer yfir tilnefningarnar og velur jólahús og jólafyrirtæki Reykjanesbæjar úr innsendum tillögum. Afhending viðurkenninga fer síðan fram í Aðventugarðinum á Þorláksmessu þar sem sigurvegarar fá einnig afhenta vinninga í boði Húsasmiðjunnar og Reykjanesbæjar.