Malbikunarframkvæmdir 19. sept - Þjóðbraut og Hafnargata

Malbikunarframkvæmdir verða fimmtudaginn 19. september á kafla á Hafnargötu og svo Þjóðbraut.

Fyrst verður Hafnargötu lokað og umferð beint um hjáleiðir. Eftir að Hafnargata verður klár verður opnað fyrir umferð um hana og í kjölfarið verður Þjóðbraut lokað og umferð beint um hjáleiðir.

Verktími framkvæmda verður því eftirfarandi:

  • Hafnargata verður lokuð frá 09:00 – 13:00
  • Þjóðbraut verður lokuð frá 13:00 – 18:00