Möguleg gasmengun 2. desember

Í dag, mánudag, er gert ráð fyrir að mengun frá gosinu leggi yfir Reykjanesbæ. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með loftgæðum inni á loftgaedi.is á meðan á gosinu stendur og eins má sjá dreifispá á vef Veðurstofunnar.

Inni á loftgaedi.is er einnig að finna ráðleggingar um viðbrögð við mismunandi styrk mengunar : https://ust.is/library/Myndir/eldgos_vidbrogd.png