Opnun Þjóðbrautar eftir gagngera endurnýjun

Breytt lega þjóðbrautar hefur verið ein af stórframkvæmdum við gatnainnviði Reykjanesbæjar undanfarið. Nú sjáum við fyrir endann á framkvæmdinni og opnað verður fyrir umferð eigi síðar en mánudaginn 7. október. Malbikun er lokið og unnið er hörðum höndum við frágang hringtorgs og nærumhverfis nýs hluta Þjóðbrautar.

Starfsmenn Umhverfis- og framkvæmdasviðs þakka fyrir þá þolinmæði sem íbúar hafa sýnt þessari mikilvægu framkvæmd og þeim töfum á umferð sem hún hefur valdið undanfarið.