- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Bæjarstjórar Sveitarfélagsins Garðs og Reykjanesbæjar hafa endurnýjað þjónustusamning Garðs við Reykjanesbæ. Undanfarin ár hefur Garður keypt af Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar ráðgjöf sem felur í sér rekstrarráðgjöf til skóla og sérfræðiþjónustu fyrir leik- og grunnskóla. Nýi samningurinn nær einnig til þátttöku í verkefni um framtíðarsýn í skólamálum. Verkefninu er ætlað að bæta námsárangur á Suðurnesjum. Framtíðarsýnin felur meðal annars í sér aukna samvinnu leikskóla, grunnskóla og foreldra. Þjónustusamningur þessi er tímabundinn til fimm ára og tekur gildi 1. janúar 2012.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)