Tilboð í tengibyggingu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja

útboðsauglýsing
útboðsauglýsing

Verkfræðistofa Suðurnesja ehf., fyrir hönd  Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum, óskar eftir tilboðum í verkið: „Tengibygging 2020 – Fullfrágengið hús“.
Verkið felst í að byggja 320 m2 tengibyggingu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja Reykjanesbæ. Um er að ræða steyptan sökkul með gólfplötu og fullfrágengið stálgrindarhús með torfþaki,  ásamt öllu sem tilheyrir til að fullgera bygginguna ásamt lóðarfrágangi.

Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 1. maí 2021.

Útboðsgögn (á rafrænu formi eingöngu) verða afhent hjá  Verkfræðistofu Suðurnesja  að Víkurbraut 13, Reykjanesbæ, frá og með mánudeginum 4. maí 2020.  

Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn  27. maí 2020, kl. 11:00.