Undirbúningur fyrir nýjan gervigrasvöll hafinn
Reykjanesbær og Bygg hf. hafa skrifað undir verksamning um jarðvinnu og lagnir fyrir nýjan gervigrasvöll vestan Reykjaneshallar. Bygg hf. var lægstbjóðandi að undangengnu útboði í verkið. Áætlað er að fjarlægja þurfi um 14000 m3 af uppgreftri, fylling er um 9000 m3, fleyga þarf um 3000 m3 af klöpp. Fráveitulagnir eru um 1500 m, ídráttarrör um völl 3300 m og hitalagnir í völl eru um 40000 m. Fullbúin æfingavöllur verður bæði upplýstur og upphitaður.
Bygg hf. hefst strax handa við verkið og áætlað er að völlurinn verði tilbúin til lagningar gervigrass í lok september 2020. Undirbúningur að útboð fyrir yfirborð þ.e. gervigrasið og lýsingu er hafin.