Fjögur smáhús eru nánast tilbúin. Húsin munu nýtast þeim sem eru með miklar og flóknar þjónustuþarfir og eru án heimilis sem stendur og því í brýnni þörf fyrir úrlausn í húsnæðismálum sínum.
Smáhúsin eru nauðsynleg viðbót í fjölbreytta flóru þjónustu velferðarsviðs Reykjanesbæjar, enda eru á annan tug íbúa í brýnni þörf fyrir þessa tegund búsetu. Þrjú hús eru nú þegar í útleigu fyrir íbúa Reykjanesbæjar og hafa nýst þeim íbúum vel. Nú er verið að taka næsta skref í þróun þessarar velferðarþjónustu og samhliða hefur verið farið í markvisst starf um stefnu í þjónustu við einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
Velferðarsvið og umhverfissvið hafa unnið að uppbyggingu verkefnisins í náinni samvinnu og eru húsin nú að verða tilbúin fyrir úthlutun til væntanlegra íbúa. Undirbúningur fyrir úthlutun húsanna og væntanlegrar þjónustu fyrir nýja íbúa þeirra er unninn í samvinnu virkni- og ráðgjafarteymis, heima- og stuðningsþjónustuteymis og Bjargarinnar, geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja.
Markmið þjónustu við íbúa smáhúsanna er að veitt sé einstaklingsbundin, heildstæð og sveigjanleg þjónusta í þeim tilgangi að íbúi geti búið á eigin heimili og verið virkur þátttakandi í samfélaginu á eigin forsendum. Skal þjónustan veitt með það að markmiði að efla vald íbúa yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd hans, sjálfstraust, félagslega stöðu, sjálfsvirðingu og lífsgæði.
Gerð hefur verið viljayfirlýsing um samstarf helstu samstarfsaðila í nærsamfélaginu sem þjónusta íbúa í þessum aðstæðum. Undir viljayfirlýsinguna skrifuðu: Velferðarsvið Reykjanesbæjar, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, Reykjanesapótek og Suðurnesjadeild Rauði krossins sem rekur Frú Ragnheiði. Sameiginlegt markmið þeirra er að sinna einstaklingsbundinni þjónustu við íbúa smáhúsanna, sem best verður á kosið hverju sinni. Jafnframt er tekið fram að unnið verði út frá hugmyndafræðinni húsnæði fyrst og skaðaminnkandi nálgun og leitast við að þjónusta íbúa húsanna út frá þjónustuþörfum þeirra og þeim aðstæðum sem þeir búa við.
Hugmyndafræðin Húsnæði fyrst byggir á gildum skaðaminnkunar og gengur út frá því að húsnæði sé grunnþörf og teljist til mannréttinda. Aðeins þegar þessari grunnþörf sé mætt, geti einstaklingur í þessari stöðu ráðið við aðrar áskoranir í sínu lífi. Hugmyndafræði skaðaminnkunar felur í sér að draga úr skaðlegum áhrifum vímuefnaneyslu á notendur vímuefna, fjölskyldur þeirra, nærsamfélagið og samfélagið í heild.
Samhliða leigusamningi er gerð einstaklingsáætlun sem felur í sér skýr markmið sem vinna skal að með viðkomandi einstakling. Stuðningurinn er veittur út frá þeirri áætlun og úrræði mismunandi þjónustuaðila samhæfð, eftir því sem hver íbúi er metin í þörf fyrir.
„Þetta er gríðarlega mikilvægt því öruggt húsnæði er oft fyrsta skrefið til þess að geta unnið að bættum lífsskilyrðum fólks. "Húsnæði fyrst" stefnan hefur skilað miklum árangri og dregið úr langtímaheimilisleysi víða um heim. Þjónustan leiðir til aukinna lífsgæða þjónustuþega og aðstandenda þeirra,“ segir Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar.
Með þessu vinnur Reykjanesbær að því að auka lífsgæði íbúa og stuðla að jöfnum tækifærum þeirra til heilbrigðs lífs og vellíðanar. Velferðarráð Reykjanesbæjar hvetur til samkenndar og mannúðlegrar nálgunar um verkefnið og óskar þess að bæjarbúar nálgist umræðuna af nærgætni.
